Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, desember 13, 2007

Hvað er þetta með veðrið!? 

Veit, er ekkert smá góð í því að væla, hehe... Í gær var það grenjandi rigning og rok og í dag bullandi snjókoma. Byrjuðum í auðu og eftir sirka 5 mínútur var allt orðið skjannahvítt og það bara snjóaði og aftur snjóaði á okkur og maður sá ekki neitt, ekkert smá blint á leiðinni og brrr hvað það var líka kalt og rok í meðlæti, alveg gífurlega yndislegt:o)

Mætingin var nú sko ekki til að hrópa húrra fyrir vorum ÞRJÚ sem lögðum af stað þakka ykkur pent fyrir. Í afsökun fyrir hina er reyndar Powerade í kvöld en samt, það eru örugglega ekki allir sem fara kannski.. hmm... ;-) Það sannar bara að það fara hörkunaglar í svona færð.. hehehehaha... ;o) Bara djók. Fórum bara sömu leið og í gær, Sæbrautina og niður í bæ og upp Laugaveginn, Borgartún og upp í Laugar sem gera að 6.7 km. Gekk bara ágætlega þrátt fyrir veðrið, var orðin reyndar svolítið þung á mér í lokin og köld og blaut, það var örugglega komin sirka 2-4 sentimetra hár snjór. En ég lagaðist við að fara í sjóðandi heita sturtu, ekkert jafnast á við það, mikið er lífið ljúft:o)

Svo er æfing á mánudag og vinna og aftur vinna alla helgina og fram að jólum, tek sjö vaktir í röð, ARG! Geri allt til að fá pínu jólafrí.

Knúsimús, Moi sjálf

~11 DAGAR TIL JÓLA~
Athugasemd(ir):
Þú átt nú bara hrós skilið ég mætti ekki vegna veðurs..lélegasta afsökun ever..í gær var það vegna vinnu..
kv.Hildur
 
Hehe.. var ekki að nenna að mæta, án gríns. EEeen vegna þú veist verkefnisins er það bara harkan sex og klára allt sem á að gera, fæ spark í rassinn frá herra foringja;o)
Sjáumst sæta skvís:)
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?