Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, desember 10, 2007

Sprettir 

Úff, það voru sko sprettir á matseðlinum í dag og tekið alveg þvílíkt á, eða það vona ég allavega. Það voru sömu sprettir og hafa verið síðustu mánudaga og þetta er svosem bara skemmtileg leið. Var að heyra nýyrði um leiðina og nú er hún kölluð teygjubyssa og þegar maður hugsar út í það þá lítur leiðin svolítið út eins og teygjubyssa, svona sirka 1 km teygjubyssa:o) Gekk bara svona, jájá, allt í lagi. Er auðvitað samt alltaf óánægð með mig í sprettunum því ég er svo hæg, kann barasta ekki að spretta. En ég kemst þó á milli staða og er afskaplega ánægð með það. Eini gallinn hjá mér í dag við blessuðu sprettina er að mér fannst ég vera hlaupa á háhæla skóm því þegar maður var að troða niður snjóinn festist hann að sjálfsögðu undir skónum og lenti líka í því að fá þennan risastóra stein undir skóinn og mikið var óþægilegt að hlaupa svona en áfram komst ég. Gerði bara að heilum 6.0 kvikindum í dag.

Nú þurfa sumir að fara að taka vel á því og klára prógrammið sitt vel og þá gæti ýmislegt gerst. Megið senda góðar hugsanir:o)

Svo er það Fossvogurinn á miðvikudag og líklegast Stíflan á fimmtudag og auðvitað vinna og aftur vinna.

Knús, Moi sjálf

P.s. Átti 18 mánaða hlaupaafmæli 1. desember og 1 árs bílprófsafmæli 8. desember. Geðveikt mikið mál eða þannig;o) Fer í akstursmat á föstudag, er alveg geðveikt stressuð fyrir það, megið senda mér góða strauma, ekki veitir af:o)

~14 DAGAR TIL JÓLA~
Athugasemd(ir):
Sendi hér með góða strauma ;o) sjáumst á morgun..
kv.Hildur
 
Skrifa ummæli
1 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?