Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, janúar 31, 2008

Enn þá meira BRRRR..... 

Úff, þetta ætlar engan endi að taka, þessi kuldi, brrrr... Smá veðursvæl í byrjun, er það ekki alveg í smá lagi?;o) Fór á æfingu í dag eftir alveg ógeðslega erfiðan vinnudag en nú eru sumir komnir í þriggja daga helgarfrí, hallelúja! Ætla sko ekki að taka aukavaktir takk fyrir, hef ekki einu sinni tíma fyrir það barasta, ekki í bili. Vá, sumir góðir með sig í dag, en kommon, var að klára 6. vaktina í röð. Meika ekki alveg fleiri strax, búið að vera allt á haus í vinnunni alla vikuna.

Það er nú ekki hægt að segja að það hafi mætt margir.. hmm skrýtið eða þannig í þessum "yndislega" kulda, vorum 5 eða 6 þó sem fórum af stað með foringjanum í broddi fylkingar (alltaf langað að segja þetta;o) Bara henda einni Pollýönnu með:o) Verð að viðurkenna að ég tók bara hálftímann í dag eða 5.6 km á sirka 54.52 mín. Hef nú hlaupið þetta á betri tíma en svona miðað við aðstæður í dag, slapp þetta alveg svosem. Það voru sirka 9-10 gráður í mínus plús ískalt rok og vindkæling og mínusgráðurnar voru pottþétt fleiri við það. Var alveg að deyja í lærunum og hnjánum af kulda. Varð hreinlega dofin að ég fann varla fyrir lærunum. Svo var enn óþægilegt að anda en ég pústaði mig alls 4 sinnum og varð aðeins skárri við það. Gekk í heildina svona ágætlega, bara Ógeðslega kalt. Var ég eitthvað búin að nefna það væri ógeðslega kalt? Hehe.. ;o)

Er sammála Hildi og Helen með kulda og rassinn á manni. Jesúsguðsson hvað mér var kalt á "elsku" stóra rassinum mínum þegar kalda vindáttin snéri að honum, úbbúbúbb, nálgaðist að dofna upp eins og lærin þannig að ég flýtti mér aðeins meira þannig að ég komst á alveg ágætt skrið, sérstaklega í lokin (það þarf ekki meira til að koma mér hraðar... hehe... ..uss.. ...ekki segja hr. foringja það, hann gæti pískað mér meira áfram, DJÓK!;o) Allavega, það þyrfti eiginlega að vera til svona spes rassavari fyrir mikinn kulda og gæti jafnvel selst vel sem hálkuvari fyrir rassa sem vilja oft detta í hálkunni. Markaðsmálin í góðum farvegi hér... hehehe... ;o) Gæti séð það fyrir mér á veturna, allir með rassavara, nýjasta trendið þokkalega;o)

Jæja, best að fara að gera eitthvað af viti og kíkja aðeins í efnafræðina. Boggupuð (og stuð;o) á morgun kl. 16:30. Allir að mæta (smá plögg:o)

KNÚS, Moi sjálf

P.s. Var að fá mér hlaupahandbókina 2008. Mæli með þeirri bók, alveg stórsniðug og þægileg.
Athugasemd(ir):
hehe góð!!! Ég myndi sko kaupa svona rassvara ;)
Hafðu það gott um helgina!
knús,
Helen
 
Skrifa ummæli
1 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?