Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, janúar 30, 2008

Fossvogurinn... BRRR... 

Það var blessaður Fossvogurinn sem var farinn að venju á miðvikudegi í þessum skítaskítakulda. Held ég hafi aldrei hlaupið í eins köldu veðri. Fór að venju öfugan hring. Finnst það nýtast mér miklu betur upp á að geta sprett eins og brjálæðingur niður brekkurnar sem og ég gerði í dag. Gekk í heildina ágætlega en vá hvað maður var þungur á sér vegna kuldans, fraus á lærunum og hnjánum og vá hvað það var óþægilegt. Svo var þvílíkt erfitt að anda í þessum kulda sem mældist mínus sjö gráður þannig að ég þurfti að pústa mig 4 sinnum. Hvernig verður þá æfingin á morgun ef það eru 7 gráður í mínus í dag? Tíminn var aðeins verri en síðast, var sirka 1.48.55, svona lala... Þetta gerði alls að 10.5 km í heildina. Garmurinn minn góði stoppaði í tvær mínútur (var alveg að deyja og þurfti smá hleðslu og stoppaði tímann til að reka á eftir mér) og gleymdist þá að mæla sirka 200 metra á því en bætti við í staðinn 300 metrum inn í dal svo að þetta yrði allavega 10 km á Garminu (hafa allt á hreinu;o) en þetta gerði þá alls að þessum 10.5 km sem er svosem ágætt í þessum skítakulda.

Svo á að reyna að tækla Árbæjarstífluna á morgun. Fer eftir hvað verður mikið kalt, á að endurmeta rétt fyrir æfingu og ef það verður ógeðslega kalt, verður fundin einhver önnur og skemmtileg leið til að fara.

*KnÚs* Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Veistu ég veit ekki hvernig ég komst síðustu metrana!! Grínlaust ég var orðin tilfinningalaus af kulda og líka þá var ég hreinlega búin á því..Hreinlega sprungin..
kv.Hildur
 
Ekkert smá frábært hjá þér! Úff já sammála Hildi, þetta var þvílíkt erfitt!! EN við erum hetjur að hafa farið! :)

kveðja,
Helen
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?