Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, janúar 23, 2008

Fossvogurinn var það heillin... 

Fór ansi mikið þreytt á æfingu í dag. Var á kvöldvakt og á vaktinni kom í ljós að sú sem átti að vera um nóttina var víst að veikjast eða eitthvað svoleiðis, þannig að sumir voru hörkutól (eða þannig...) og héldu áfram í 8 klst. í viðbót;o) Vaktirnar gengu bara vel en var orðin talsvert mikið þreytt í lokin og var mikið fegin að sjá rúmið mitt í morgun og fara að kúra. Náði samt bara að sofa tæpa fimm tíma, hefði mátt vera meira.

Var alveg hundþreytt á æfingunni en út hunskaðist maður enda er bara ein hugsun að baki því þessa dagana.. hehe.. Að venju var það Fossvogurinn á miðvikudegi og öfugur (a.ka. homminn) Finnst að það nýtist mér betur upp á að spretta niður brekkurnar eins og brjálæðingur. Það gekk svona þokkalega fyrir utan að vera þreytt eitthvað og þung á mér. Ætlaði að bæta aðeins við æfinguna með því að taka nokkar slaufur og dúllur inn í Laugardal en hafði bara ekki meiri orku í það. Þar að auki var ég ekkert búin að borða að ráði síðan í gær. Kláraði semsagt 10.1 km. Verð að passa mig að fara ekki minna en þetta og helst miklu meira. Voru bara ágætisaðstæður, ekki hægt að bera það saman miðað við hvað færðin var ömurleg fyrir viku síðan. Þokkalegt og fallegt veður og 2ja stiga frost. Kom því miður smá snjóflygsukafli inn á milli, er bara ekki að meika meiri snjó, þetta er orðið ágætt, haaa... smá væl;o) Dúllaði mér bara alla leiðina og hafði það nokkuð ágætt í heildina.

Svo er það Elliðarárdalurinn á morgun, býst við að það verði upp að Stíflu. Finnst það vera nóg í þessu snjóógeði og þegar fer að minnka og nánast snjólaust, verður það ekki minna en 14 og 18 km. Vona að ég eigi eftir að standa mig.

Hey já, byrja í nýju vinnunni 3. mars og hlakka bara mjög til að byrja.

KNÚS, Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Halló! Ég þekki þig ekki neitt en les alltaf bloggið þitt! :-P Langaði bara að kvitta og segja að þú ert geðveikt dugleg í þessu marr! Hvernig væri svo að henda inn tímunum með vegalengdunum fyrir svona tímafríkur eins og mig? :-P

Svo skil ég engan veginn hvernig þú nennir að hlaupa í þessum snjó... ég er allt of löt til þess! Hehe! :-P
 
Hæ duglegust, ætlar þú á æfingu á laugardag?? Láttu mig heyra!!
Kv.Hildur
 
Er ekki alveg viss. Var að pæla að fara á bretti og reyna að æfa fyrir þetta blessaða þolpróf sem ég veit ekki hvenær verður næst. Er á kvöldvakt á laugardeginum. Klúðraði æfingu dagins með því að mæta ekki!!:o( Fékk eitthvað aðeins í magann í vinnunni (spurning með illa eldaðan kjúlla í dag) og hafði ekki lyst á neinu, þannig að ég aumingjaðist og fór ekki, ekki sátt við mig plús að ég hef sofið mjög illa eftir kvöld/næturvaktina. Guð, ég verð að fara að drífa mig að borða núna. Dett niður bráðum ef ég fer ekki að gera það núna:o/ En eins og ég segi, er alls ekki viss. Þyrfti að taka extra langa æfingu út af æfingamissinum í dag. Ætlar þú að fara mín kæra?:)
Knús, Sveinbjörg
 
Kæri dyggi blogglesari:o)

Ég er bara upp með mér að þú fylgst með blogginu þó ég viti ekki hversu skemmtilegt/fræðandi það er, en ég segi bara takk, takk:o)

Spurning með tímana. Gæti alveg skellt þeim inn en ég verð að vara þig við, þeir eru ekki æðislegir get ég sagt. Sérstaklega ekki á æfingunum en eru nú oftast skárri í keppnum:)Kannski allt í lagi miðað við svona fitubollu, vona að þau mál fari nú að lagast smám saman;o)

En þetta er bara rosalega gaman og maður fær svo mikinn félagsskap í hlaupunum og eignast fullt af vinum sem sparka oftar en ekki í rassinn á manni til að ýta manni áfram. Þetta með snjóinn, já. Hef oft lent í hugsanakrísu hvort maður ætti að vera í þessu snjóveseni (sérstaklega áður en ég byrjaði að skokka/hlaupa en staðreyndin er bara sú að manni líður svo vel á eftir þó maður sé að deyja á æfingunni.

Úps, aðeins of langt. En takk fyrir að lesa:o)

Kv. Sveinbjörg M.
 
Ég var líka að spá í bretti..Maður tékkar kannski á þessu á laugardagsmorguninn, færið og svona..Já ég fór ekki heldur á æfingu í dag..
Kveðja Hildur
 
Kannski í Laugum...?:o) Guð, verð að bæta upp fyrir æfinguna í dag. Voða hrædd um að ná ekki þessum 40 km. Mjög lélegt hjá mér:o/
Knús, Sveinbjörg
 
Greinilega rosalega dugleg þessa dagana. Sé ykkur Hildi kannski í Laugum á Laugardaginn. Þarf að taka þig til fyrirmyndar með mætingar :o) Kv. Guðrún Lauga
 
Hehe.. takk:o) Það má nefnilega ekkert bregðast næstu ja.. 7 mánuðina eða svo fyrir stóra málið sem vonandi á eftir að takast;o) Vildi að ég kæmist hraðar. Er eins og silakeppur venjulega og hvað þá í snjónum... hmm.. ;o) Er með huge samviksubit yfir óæfingunni í dag:o/ Bæti upp fyrir það hopefully:)
Knús, Sveinbjörg
 
Takk fyrir svarið! :-)
 
Skrifa ummæli
9 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?