Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, janúar 14, 2008

SPRETTIR brrr... 

Er bara ansi löt enn að skrifta en þetta hlýtur að hafast, alveg að fara að koma;o) Síðustu dagar hafa einkennst af; ógeðslegri pest sem eyðilagði algjörlega fyrir mér hlaupavikuna og líka Boggupuðið, brjálaðri vinnutörn í ekki skemmtilegu veirumagapestarumhverfi inni á deild og það liggur við að maður sé í hálfgerðri vímu af allri þessari handsprittanotkun, úff segi ég nú bara. Það er ábyggilega sirka 90% starfsfólks á deildinni búið að fá þetta pestarógeð. Oh hvað ég vona að þetta fari að lagast, maður er orðinn pínu geðveikur á þessu öllu saman en hey, það er ekkert til sem er við þessu nema hún skemmtilega Pollýanna vinkona sem reddar öllu enda er þessi púst búin að vera út um allan bæ, hef ég heyrt allavega, buhuhuuu.... smá væl í lokin og svo plástur ofan á. Punktur!

Allavega, kom mér á æfingu í dag, orðin biluð að hreyfa mig ekkert. Pestin lagði mig alveg í sirka 3 daga alls en þetta er allt að koma til, bara smá bumbult af og til en annars ekkert sem betur fer. Var sko ekki að fíla það á æfingunni í dag hvað var ógeðslega kalt, langaði svo innilega ekki en varð auðvitað að fara og plús það að bæta fyrir syndir síðustu viku sko, þokkalega!

Gekk bara fínt æfingin í heild bara en er samt orðin frekar pirruð hvað ég fer hægt um, finnst eiginlega ekki hægt að kalla þetta hlaup hjá mér en miðað við persónulegan mælikvarða voru þetta bara ágætishlaup;o) Þurfti að pústa mig aðeins, varð snemma svo móð og másandi en það var aðallega út af kuldanum sem ýfði allt upp. Var nú með buff fyrir vitunum en þá var það eitthvað of mikið og bara óþægilegt að anda þannig. En ég jafnaði mig eftir smátíma. Þetta voru sömu sprettirnir og fyrir viku síðan þar sem var farinn 500 metra hringur, annar 900 metra og þriðji 800 metra. Byrjaði reyndar á því að taka 2/3 af 600 metra spretthringnum, til að bæta pínulítið við. Tók tvö sett af hringjunum þremur og svo fór ég einu sinni 500 metra hringinn í lokin. Æfingin varð að 9.0 km hjá mér sem er svona lala en allavega betri heldur en síðustu mánudagsæfingar sem hafa verið í kringum sex kílómetrana en er samt frekar fúl út í mig fyrir að fara ekki hraðar, eitthvað svo þung í fótunum (plús að fitubollukílóin hjálpa ábyggilega líka til), örugglega bjúgurinn að stríða eitthvað. Er búin að vera að taka bjúgtöflurnar en ég veit ekki hvort þær virki, hreinlega ekki. Tek þær á morgnana og finnst ekkert gerast en það virðist samt vera svo eitthvað komið í gang seinnipartinn. Þarf að fylgjast betur með þessu og vona það besta og krossa putta. Þetta er svo ömurlegt að þó maður sé búinn að leggja hart að sér að vinna í sínum málum, þá gerist sama sem ekkert og lítur út fyrir að maður hafi ekki gert neitt:o/ En í heildina séð er ég nokkuð sátt við æfinguna fyrir utan þennan nístingskulda:o)

Best að hætta í bili, allt of mikið eitthvað bull í dag. Æfing næst á miðvikudag.

Knús og kram, Moi sjálf

P.s. Emil Dagur "litli"frændi sæti er barasta 16 ára í dag. Elsku karlinn minn, bara að verða fullorðinn og byrja í æfingarakstri:o) Veit að ég er væmin skrýtin frænka en þú verður samt alltaf "litli" sæti frændinn minn:o) **kNúS**
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?