Moi sjálf:o)
- GESTABÓK ~ KVITT, KVITT:o)
- "Afrekin" mín;o)
- ÉG Í VIÐTALI Í 24 STUNDUM:o)
- ÉG í VIÐTALi VIÐ ASTMA- OG OFNÆMISFÉLAGIÐ:o)
- GREIN EFTIR MIG Í BLAÐI ASTMA- OFNÆMISFÉLAGSINS (BLS. 25):o)
- Vinnan mín
- Mogginn
- Fréttavefur
- Suðurland.net
- Klaustur:)
- Hvolsvöllur:)
- New York póstur
- Vísir.is
- Leit.is
- Hvað finnur maður ekki þegar maður "googlar"?;)
- Ameríska Idolið
- Fyrir þá sem fíla Eurovision af lífi og sál:)
- Youtube
- Facebook ~ ávanabindandi;)
- Poolarar:o)
- Bankastúss
- Eitthvað fyrir bíófíkla...
- Kvikmynd.is
- FSu:o)
- NFSu:o)
- Gamli kórinn minn
- LAUGASKOKK ~ Allir út að hlaupa:o) Ógeðslega gaman!
- Astma-og ofnæmisfélagið
- Astmafjallganga 2009
- HLAUP!!
- Biggest loser
- Biggest loser club
- Heilsugæslan mín
- Sjúkraþjálfun
- Heilsuráðgjöf.is ~ Hollt fyrir alla að kíkja þarna við
- Næringarforrit og fleira
- World Class
- Hlaup.is
- Maraþon.is
- Íþróttasíða
- Rosalega sniðug uppskriftarsíða
- Afreksvörur ~ Flott hlaupabúð
- Sportland ~ Flott íþróttabúð
- Icefin ~ Frábær útivistarbúð:-)
- Fjallakofinn
- Íslenskt grænmeti og uppskriftir
- Matseld.is ~ Fullt af uppskriftum
- Salatbarinn ~ Geggjað góður staður
- Salatbarinn ~ Matseðill
- Gulla sys
- Nýja síðan hjá Ingu Sól og Dagbjarti Mána:o)
- Inga Sól:o)
- Dagbjartur Máni:o)
- Óskar:o)
- Sigrún Birta:o)
- Emilý Sigurrós sæta:o)
- Árný Alda og Guðný Kristín:o)
- Guðrún Sigríður og Soffía Kristín:o)
- Helga Magga
- Tóta
- Siggi
- Telma
- Sigrún H
- Fanney
- Sigga Skag
- Kristrún Harpa
- Björg Páls
- Lauga:o)
- Ungfrú Júlíana;)
- Agga STÓRhlaupari:o)
- Bibba SVALA járnkona:o)
- Eva og co.
- Sóla:o)
- Ásta:o)
- Hildur ofurhlaupalögga:o)
- Helen megahlaupari:o)
- Guðrún Lauga hlaupakona af guðs náð:o)
- febrúar 2003
- mars 2003
- maí 2003
- júní 2003
- júlí 2003
- ágúst 2003
- september 2003
- október 2003
- nóvember 2003
- desember 2003
- janúar 2004
- febrúar 2004
- mars 2004
- apríl 2004
- maí 2004
- júní 2004
- júlí 2004
- ágúst 2004
- september 2004
- nóvember 2004
- janúar 2005
- mars 2005
- júlí 2005
- október 2005
- nóvember 2005
- apríl 2006
- ágúst 2006
- október 2006
- desember 2006
- janúar 2007
- febrúar 2007
- mars 2007
- apríl 2007
- maí 2007
- júní 2007
- júlí 2007
- ágúst 2007
- september 2007
- október 2007
- nóvember 2007
- desember 2007
- janúar 2008
- febrúar 2008
- mars 2008
- apríl 2008
- maí 2008
- júní 2008
- júlí 2008
- ágúst 2008
- september 2008
- október 2008
- nóvember 2008
- desember 2008
- janúar 2009
- febrúar 2009
- mars 2009
- apríl 2009
HÉR OG ÞAR OG ALLSSTAÐAR
Hlaupa- og heilsusíður
Fólkið mitt (",)
GAMALT OG GOTT:D
ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)
mánudagur, janúar 28, 2008
Mondays sprettir...
Loksins lætur maður vita af sér, búin að vera ansi löt, sorry! Byrja hér með að játa mjög slæmar syndir og segja að ég fór ekki á æfingu á fimmtudaginn og heldur ekki Boggupuð á föstudaginn og er búin að deyja úr samviskubiti, skammast mín svo yfir að aumingjast svona:o/ Borðaði alveg hræðilega illa eldaðan kjúlla í vinnunni á fimmtudag. Var svona bleik/rauður einhvern veginn og var bara alls ekki að gera sig. Rétt kláraði að meika vinnudaginn og varð svo slappari seinnipartinn og fékk svo hræðilega í magann að ég þorði ekki á æfingu. Var ekki orðin nógu góð daginn eftir. Það er alveg ljóst að ég borða sko ekki aftur kjúlla upp í vinnu, arg! Fór svo á brettið laugardag og tók einhver 9 kvikindi í rólegheitunum. Vikan slefaði þá bara í 29.3 km sem er hundlélegt frá því í vikunni áður:o/ Verð að bæta mig núna, það er alveg víst.
Síðan var æfing í dag og það var skellt sér í slatta af sprettum. Það var alveg eins og undanfarna mánudaga, 500, 900 og 800 metra hringir. Fór eftir þessari alveg ágætu uppskrift sem ég fann upp síðast og tók 5 x 500 m, 2 x 900 m og 3 x 800 m og svo var auðvitað upphitunin og niðurhlaupin. Þetta gerði að 10.3 km í dag. Náði einhvern veginn að lengja æfinguna um heila 100 metra, rosalegt haaa..! Vá, alveg þvílíkt mikið eða þannig;) Á víst dyggan og góðan blogglesanda hérna (alveg þvílíkt montin með það, takk:o) sem vildi endilega að ég skellti inn tímunum af æfingunum, EeeN ég verð að vara alla við, því ömurlegri tímar hafa ekki sést hjá annarri manneskju á öllu þessu jarðríki, án gríns. Alls var tíminn í dag 1.45.09, semsagt ekkert augnayndi en þó með þeim skárri í þessari ógeðslegu vetrarfærð (engin Pollýanna vinkona þarna... hmm..) Þurfti að labba mig niður nokkrum sinnum. Æfingin byrjaði frekar brösulega því loftið var svo ískalt og ég andaði og andaði hraðar og hraðar að ég fékk þvílíkt astmavesen og þurfti að pústa mig sirka 4 sinnum. Náði varla djúpandanum og það er hræðileg tilfinng, alveg eins og eitthvað sé að kæfa mann liggur við. Svo var ég svolítið slæm á köflum í hnénu sem var að pirra mig í haust, svona asnalegur fiðringur á einum punkti á hnéskelinni sem var þvílíkt að pirra mig. Finn líka talsvert fyrir þessu þegar ég labba upp stiga. Æi hvað ég vona að þetta hætti bráðum. En þetta gekk allt saman ágætlega í heildina séð.
Hitti pínu á foringjann eftir æfingu og fórum aðeins yfir málin. Hann sagði að ég þyrfti að fara að ná meiri hraða og halda honum. Þetta er einmitt það sem er búið að vera að pirra mig. Þoli ekki að komast ekki hraðar. Þarf náttúrulega að ná að LÉTTAST sem hjálpar manni að komast hraðar (mikil óþolimæði og vigtaræði í gangi hjá sumum þessa dagana) Komin með hálfgert ógeð á því hvað vigtin hreyfist hægt en hún er samt ekki á uppleið, stendur í stað. Spurning hvort bjúgurinn sé líka að eyðileggja aðeins fyrir, svo þung á mér í fótunum og kálfunum og eru stundum eins og fílafætur, sérstaklega eftir vinnuna (er líka alveg hræðileg þegar ég er í fínum skóm við kjól, það er eins og ég sé tröll eða eitthvað svoleiðis *fýlukall*) Er að sjá til með hvernig bjúgtöflurnar virka. Finnst ég ekki hafa fundið svaka mun. Vona og vona og vona að þetta fari að síga niður á við því guð veit að ég er að reyna að gera mitt besta (úps, einum of djúpt;o) Skilaboðin frá foringjanum í lokin voru: EKKERT BRAUÐMETI! Það er alveg satt, en er búin að vera samt þónokkuð stabíl á þessu sviði að undanförnu:)
Ætla að skella mér í þríþrautina í febrúar eftir miklar vangaveltur þó ég sé pínu stressuð að seinka fyrir öllum hinum og gera mig að pínu fífli, en það er bara allt í lagi:o) Er einhver þríþrautarfróð manneskja sem kemur hingað inn á síðuna? Er að pæla með skiptingarnar á milli þrauta, teljast þær inn í heildartíma og hvernig er með fötin, þarf einhver sérstök föt eða skó í hjóladæmið? Ekki getur verið voða þægilega að troða sér í hlaupabuxur eftir sundið í geðveiku stressi, don´t know. Langar að vera pínu skipulögð og já, þarf aðeins að fara æfa mig í sundinu áður en actually kemur að keppninni, er búin að vera hryllilega löt við sundið að undanförnu, er svo mikil kuldaskræfa, Looser;o)
Já, eitt að lokum, er einhver efnafræðingur á svæðinu?;o) Var að byrja í fjarnámi í efnafræði frá Ármúla. Þetta er svona undirbúningur fyrir hjúkrunarfræðina og þetta er ömurlegasta grein sem ég hefði á ævinni verið í, því ég sökka svo feitt í henni. Er frekar mikið stressuð en vona svo innilega að þetta gangi upp. Er búin að vera frekar skíthrædd síðustu vikuna við að reyna að koma mér inn í þetta, rugla öllu einhvern veginn saman. Æi, það væri gott ef þið hugsuðuð ágætlega vel til mín í þessu:o)
Best að hætta þessu bulli í dag. Aðeins of langt haaa... Bæta upp fyrir syndir síðustu viku;o)
KNÚS, Moi sjálf

Athugasemd(ir):
7 Athugasemd(ir)
Hvort sem þú heldur að þú munir fá einhverju áorkað eða ekki, þá hefurðu rétt fyrir þér(ég held að þessi hafi komið frá Henry Ford). Þú hefur ekki næga trú á sjálfri þér kona! Þú hefur ákveðið að þú sökkir í efnafræði, það eru allar líkur á að þú munir þá gera það. Þú ræður þessu sjálf, þú ein, pældu í því. Þú verður að vera jákvæðari gagnvart sjálfri þér. Það sama gildir um hlaupin, ef þú ferð af stað sannfærð um að nú verði þetta kalt, erfitt og að þú verðir þung á þér, þá rætist það. Byggðu sjálfa þig upp í stað þess að rífa niður. Sjáðu sjálfa þig fyrir þér, á sprettinum með 10 í einkunn í efnafræðinni.Þú getur þetta alltsaman, en bara ef þú trúir því sjálf. Kv. Annar dyggur aðdáandi.
Ji, annar aðdáandi, er bara hrikalega montin núna:o)
Takk fyrir svona flott svar. Einmitt svona spark í rassinn sem ég þarf. Þarf að hafa meiri trú á mér en þetta fer að koma og það skal gera það:o) Hef bara alltaf fundist ég vera minni og lélegri en allir í kringum mig, mjög fáránlegt en því miður staðreynd en þetta fer að lagast. Þarf að fara taka mig í gegn og þá kemur þetta:)
Með efnafræðina, pottþétt hugarfarið sem spilar mikið inn í, alltaf fundist efnafræðin hundleiðinleg, þarf að breyta þessu. Var mjög neikvæð fyrst (fannst ég hafa ekkert samhengi á hlutunum) en ég held að þetta sé að koma. Sendi kennaranum póst í gær og leið miklu betur eftir það:) Nú er bara að fara að rokka feitt í stað þess að sökka feitt:o)
En takk innilega fyrir svarið og fylgjast með mér:o)
Kv. Sveinbjörg M.

Sveinbjörg mín þú ert svakalega dugleg og það er mikið til í þessu að þú ert að brjóta þig niður, vertu frekar stolt af þér og hversu dugleg þú ert..Flott stelpa, góð stelpa og dugleg..Er hægt að biðja um það betra held ekki!!! Annað ég fann reyndar fyrir kuldanum eins og þú í gær..Mér fannst að anda inn, var einhvernvegin of kalt!!!
Kv.Hildur
Kv.Hildur
Takk fyrir þetta Hildur sæta mín:o) Já, ég veit ég þarf að fara að hætta þessu bulli haaa.. Er stolt yfir mörgu og þá er það sérstaklega 1/2 maraþonið og líka vonandi ef allt gengur upp með þú veist;o) Þarf að vera jákvæðari og þá vonandi kemur þetta:) Ég spurði Pétur um markmiðin með þú veist (rosa duló eitthvað;o) en hann sagði að ég þyrfti að léttast talsvert mikið, upp á að fara hraðar. Eins og hann sagði við Rögga, SLEPPA BRAUÐMETI;O)
Knús, Sveinbjörg M.
Knús, Sveinbjörg M.
Hæ skvís. Tek undir með hinum. Manni gengur sko miklu betur með hlutina ef maður hefur trú á sjálfum sér og lítur á hlutina með jákvæðu hugarfari. Teldu þér trú um að þú sért góð í efnafræði það sakar ekki. Ég kláraði á sínum tíma 5 áfanga í efnafræði í Ármúla, fyrst ég gat það þá getur þú það. Trúðu mér þrátt fyrir það þá kann ég ekkert í efnafræði í dag :o) Kv. Guðrún Lauga
Halló! Dyggi blogglesari númer eitt hérna! Hehe! Eða bara Júlíana fyrst þú átt svona marga "nafnlausa" lesendur! Takk fyrir að henda tímanum þarna inn! Hann er ekki lélegur! Þetta er bara ágætis tími... ég meina... ef þú myndir labba að einhverri manneskju í kringlunni og spyrja: "Geturu hlupið 10 km á innan við 1:45:09?" Hversu margir helduru að myndu segja já!? ;-)
Ekki mjög margir held ég!
Kv. Júlíana :-)
Ekki mjög margir held ég!
Kv. Júlíana :-)
Takk kærlega fyrir þetta Júlíana:o) Þetta er svona þokkalegur tími svona miðað við snjóinn og vesenið. Er miklu skárri í svona veðri sem á að vera, sem er snjóleysi;o)
Já, það er spurning um að prófa bara að labba í Kringluna og spyrja fólk að þessu.. hehe.. ;o) Það væri fróðlegt að sjá svipinn á því.. haha.. :o)
Kv. Sveinbjörg M.
Skrifa ummæli
Já, það er spurning um að prófa bara að labba í Kringluna og spyrja fólk að þessu.. hehe.. ;o) Það væri fróðlegt að sjá svipinn á því.. haha.. :o)
Kv. Sveinbjörg M.