Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

föstudagur, febrúar 15, 2008

BogguPUÐ 8 

Var dálítið löt í gær að ég nennti ekkert að skrifa neitt, shame on me;o)

Skellti mér nú barasta að Árbæjarstíflunni í gær en fór aðeins fyrr þannig að ég sleppti æfingunni. Var ekki í stuði fyrir seinnipartinn. Færðin var skömminni skárri en allt í pollum dauðans og svo einhverjar klakabrynjur hér og þar en OK. Gekk bara ágætlega en lullaði þetta rólega bara. Þetta er 11.5 km en teygði þetta í einhverja 12 km með því að taka smá krók inni í Laugardal. Ekkert sérstakur tími, 1.55.20 klst. Þó skárra heldur en á miðvikudag. Vona að ég eigi ekki eftir að toppa mig í þessum lélegum tímum og hana nú! *Sjö~Níu~Þrettán undir spýtu*

Svo var að sjálfsögðu BogguPUÐið í dag og það var sko tekið á eins og venjulega. Vorum nú ekkert rosalega mörg (koma svo og mæta, opin tími fyrir alla, smá plögg að sjálfsögðu;o) þannig að við tvö eða þrjú sem vorum komin fórum á brettin í korter til að hita upp og athuga hvort það kæmu ekki fleiri. Bættust nokkrir í viðbót, flott mál. Var að reyna að æfa mig fyrir þetta þolpróf og nú sökkaði ég geðveikt. Var ekki nálægt næsta lágmarki sem ég þarf að ná. Náði bara 1.43 km á 12 mínútum og alls 1.71 km á 16 mínútum. Skil ekki af hverju ég næ ekki meira. Var á hraða 7.3 mest allan tímann og fór svo í 8.0 síðustu 2 mínúturnar. Labbaði ekkert þannig að ég er forviða af hverju þetta er svona. Þarf ég að vera á enn meiri hraða á brettinu til að ná fleiri metrum? Algjör illi í þessu. Verð svo að ná næsta stig, sérstaklega fyrir egóið. Svo tókum við tvo MJÖG erfiða hringi og að lokum tókum við armbeygjur og magaæfingar og ég held að ég hafi aldrei á ævinni tekið eins mikið og í dag, bara 80 armbeygjur og 80 magaæfingar, ó mæ lord, úffpúff ERFITT en KLÁRAÐI, jibbíjei;o) Það eru strax farnar að myndast ágætis harðsperrur, hvernig verð ég í fyrramálið?;-)

Fór til frú næringarfræðings í gær. Gekk bara ágætlega. Hún var rosa ánægð með matardagbókina, enda er ég búin að passa mig eins vel og get, og svo má alls ekki gleyma að það er ákveðin markmið í gangi sem ég óska þess að gangi upp. Þori bara ekkert að segja það á blogginu þó svo það séu þónokkrir sem vita hvað það er, segi kannski þegar nær dregur;o) En vigtin stóð í stað alveg upp á gramm frá því síðast. Er allavega ekki að þyngjast en mig langar að fá lægri tölu, svolítið frek. Finnst hafa staðið mig ágætlega bæði í hreyfingu og mataræði, þannig.. I don´t know... en hún var bara ánægð með mig:)

Veit ekki hvort ég komist í þríþrautina verði hún á fimmtudaginn í næstu viku. Var að panta mér tíma hjá tannsa og alveg heví vesen að fá tíma hjá honum þegar maður er í 100% vinnu og fullt hjá tannsanum. Á að vera á morgunvakt en fæ tíma kl 13:00, þannig að ég neyðist til að skipta og verð þá kvöldvakt, þ.e.a.s. ef ég næ að skipta við einhvern en ég gæti skipt um dag við eina þannig að ég kæmist bæði til tannsa og þríþrautina. Krossa putta að sú manneskja geti það.

Er að rembast í gegnum efnafræðina og heilinn minn vill bara ekkert skilja þetta, reyni að feta mig í gegnum þetta, úffpúff. Barasta verð að ná þessu, bæði fyrir efnafræðiegóið í sumum og svo náttúrulega ef þessir sumir ætla að reyna að komast í hjúkrun. Krossa aftur putta og splæsi líka nokkrum tásum í þetta skiptið, er það ekki bara?:O)

Jæja í bili, eins og maður segir einum of oft. Best að fara að gera eitthvað af viti og LÆRA eitthvað aðeins. Ætla kannski að kíkja í baðstofuna á morgun, nota útráttarverðlaunin sem ég fékk í Laugaskokkshlaupinu okkar í fyrra, ekki seinna vænna. Fer eftir hvort mín kæra Helga systir geti það:o)

Eigið yndislega helgi kæra fólkið "mitt":)

MILLJÓNTRILLJÓNBILLJÓN KnÚS, Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Þetta kemur allt hjá þér! :-) Hvaða lágmarki þarftu að ná í þolprófinu?
 
Takk fyrir peppið, vona það svo innilega:)

Þarf að ná 1550 metrum á 12 mínútum með 1° í halla, svo þetta sé líkt því að hlaupa úti. Það væri örugglega léttara að hlaupa með engan halla, don´t know. En það sem ég náði best var 1440 metrar. Það var önnur við hliðina á mér á síðasta prófi sem var fór nákvæmlega jafnlangt en hún var nú í miklu betra formi;)
 
Heyrðu... ég reiknaði þetta út fyrir þig! Þú þarft þá að vera á 7,8 allan tíman til að ná! Þá færiru meira að segja 10 metrum lengra... hehe! ;-)

Reikningsdæmið: 7,8/60=1,3 1,3*12=1,56

1560 metrar! ;-)
 
Af hverju er ég í efnafræðiáfanga en ekki stærðfræði haaa..? Þú ert náttúrulega bara algjör SNILLINGUR:o)

Úff, þarf að vera á þessum hraða allan tímann þó þetta sé reyndar ekki mikið. Verð nefnilega að labba mig af og til, verð móð eins og hundur. Eeen ef ég held þetta út kemst ég þá næsta stig sem er slakt og guð, hvað þarf ég þá til að komast á næsta stig eftir það? Verð að ná þessu til að byrja með:) Gott að vita hvaða hraða á að vera á;o)
 
Skrifa ummæli
4 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?