Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, febrúar 21, 2008

Buhuhuhuuuuu.... 

Það verður víst ekkert af þríþraut þetta árið, buhuhuhuuuu... :o(

Er orðin lasin og orðin nánast raddlaus vegna elsku "grey" hálskirtlanna minna. Mjög aðalaðandi rödd sem heilsar ykkur eða EKKI. Píndi mig til að fara í vinnuna í gær og aumingjans sjúklingarnir skildu ekkert það sem ég sagði og voru alltaf haaaa..... þannig að ég þurfti alltaf að æpa á þá einhvern veginn þannig að þeir heyrðu almennilega í mér. Frekar skondið á tímabili en var ekki að meika vinnudaginn, þorði ekki að hringja mig veika klukkan hálfsjö, smá harkan 6 í sumum, harkihark;o) Var annars hundslöpp og með hita og sofnaði um leið og ég kom heim og missti röddina nánast alveg í gærkvöldi. Röddin aðeins að koma til en mjög rám ennþá. Þannig að það varð úr að sumir eru búnir að skrópa á hlaupaæfingum og þríþrautinni sem er í kvöld, AUMINGJAvæææææl:o( Bara smá útrás í gangi. Má nefnilega ekki við svona veseni fyrr en kannski í október ef ég fengi að ráða:o/

Fór til tannlæknis í dag í reglubundið tékk, komið rúmlega ár síðan og ekki veitir af eftir tannviðgerðir dauðans fyrir nokkrum árum, þeir sem þekkja mig vita hvernig ég var einusinni, úffpúff segi ég nú bara. Sumir eru búnir að næla sér í eina skemmd takk fyrir, hvernig fór ég að því??? Svo vill hann taka endajaxl í efri góm og hann ætlar að laga skemmdina um leið og tekur jaxlinn. Fer til hans aftur 6. mars. Þá ætti maður að vera gordjöss haaa, er það ekki?;o)

Var að gera skilaverkefni í efnafræðinni í gær úr 1. og 2. lotu. Gekk bara allt í lagi. Fékk 6.5, hefði getað svosem betur. Þetta voru aðallega klaufavillur, ruglaði pínu saman. Gerði óvart 2 plúshleðslur í einu svari en það var 2 mínushleðslur, úps. Maður fær 60 mínútur til að leysa verkefnið. Því fleiri verkefni sem maður skilar inn, því meira lækkar vægi lokaprófsins. Held að þetta sé max 20% sem maður getur lækkað lokaprófið, þannig að það verði 80% lokapróf en ekki 100%. Er ég gáfuð í stærðfræði? Barasta aldrei munað annað eins.. hehe.. ;o) Þetta eru 3 eða 4 skilaverkefni.

Ætla að reyna að komast á æfingu á mánudaginn, vona að ég verði búin að ná þessu ógeði úr mér. Ég má nefnilega ekki við að klúðra hlutum ef ég ætla að standa við þessi blessuðu markmið sem mig langar svo standa við, PLÍS... :)

Svo er það bara vinna um helgina á fullu. Vonandi að ég meiki hana betur heldur en í gær:) Síðasta vinnuhelgin á hjartadeildinni og svo síðustu vaktirnar í næstu viku, jahérna hér! Hefði ekki trúað fyrir þremur mánuðum að ég hafi ætlað að skipta en mér fannst tími til kominn að kynnast nýju og fá allt aðra reynslu. En ég hlakka bara til að prófa nýjan stað og svo fæ ég næturvaktir sem ég er bara mjög sátt við. Á eftir að sakna fólksins "míns" á hjartó, en á auðvitað eftir að koma í heimsókn og svoleiðis, engar áhyggjur:o) Segi bara knús við ykkur allar, sætu konur**

Eigið góða helgi yndislega fólk þarna úti:o)

MILLJÓN*TRILLJÓN*BILLJÓN*SILLJÓN KnÚs, Moi sjálf
Lalala.....kvitti*kvitti*kvitti*kvitti*kvitti*kvitti*kvitt.....Lalala....
Athugasemd(ir):
Farðu vel með þig dúllan mín. Ég mætti á æfingu í gær og hljóp á hraða skjaldbökunnar he he, lungun ekki alveg orðin góð eftir mín veikindi svo farðu varlega..Sjáumst.
kv.Hildur
 
Það verða fleiri þríþrautir! ;-) Farðu bara vel með þig og láttu þér batra! ;-)
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?