Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

I´m alive:) 

Jæja (með stóru Æææ-i) Þá komst maður loks aftur í samband við umheiminn:) Netið datt út og það var loksins að detta inn í dag, jibbísjibbí. Hef ekki getað kíkt á póstinn minn eða verið í sambandi við kennarann þannig að það er búið að vera ástand á sumum.

Búið að vera alveg nóg að gera í vinnunni og núna er að líða síðasta vikan á hjartadeildinni og svo er það lýtadeildin á mánudag. Síðasta vaktin á föstudag. Jedúddamía hvað þetta er búið að vera fljótt að líða. Það eru komin rúm þjú ár síðan ég byraði að vinna á po den hjartadeilden. Búið að vera krefjandi en ótrúlegur og rosa skemmtilegur tími. Fannst bara vera komin tími á breytingu og fara í eitthvað allt annað, taka svona 360° beygju. Á eftir að sakna stelpnanna "minna" en á pottþétt eftir að kíkja í heimsókn og knúsa þær dúllurnar. Segi bara takk fyrir allt saman sætu mínar:o) Hins vegar hlakka ég mjög til að kynnast öðru fólki og kynnast nýjum aðstæðum, Pínu nervös svona til að byrja með, en það hlýtur að lagast þegar ég er komin inn í hlutina og rútínuna og venjast nýjum spítala. Flestir sem þekkja mig vita hversu góð ég er í að villast, hehe.. :o) Sendið mér kannski góða strauma fyrir það líka ;o) New place, here I come!

Skellti mér loks á æfingu rúmlega vikupásu (SKAMMSKAMM!) eftir hunderfiðan vinnudag, bara nóg að gera allan tímann. Rúlla sjúkling út af stofu, rúlla sjúkling inn á stofu. Hundrað manns (liggur við stundum) á ganginum. Alltaf fjör og action, það vantar ekki;o) Æfingin byrjaði á að það kom ljósmyndari og tók myndir af þessum æðislegu Laugaskokkurum í "action" á hlaupum. Það var verið að taka eitthvað viðtal við foringjann og það þurfti auðvitað ljósmyndafyrirsætur til að toppa greinina.. hehe... Þurftum að hlaupa mjög hægt sirka þrisvar sinnum í átt til ljósmyndarans svo myndin yrði ekki mjög "blörruð" Hann var nokkuð ánægður með okkur:)

Síðan héldum við okkar striki og það var stefnt á Fossvoginn í dag. Það endaði svo að ég aumingjaðist hálftímann. Ég er greinilega ekki alveg tilbúin í slaginn. Þvílíkt mikið slím ennþá í lungunum og ég átti mjög erfitt allan tímann og var alveg að enda í astmakasti, hélt ég myndi kafna hreinlega á tímabili og var mjög gáfuð að gleyma fjandans (afsakið:) pústinu heima, mjög gáfulegt eða þannig. Búin að vera í hóstakasti hérna og óþægindum í allt kvöld, liggur við að ég myndi kafna nokkrum sinnum, orðin eldrauð og kúgaðist næstum. Rosalega óþægilegt. Síðan var grey ökklinn minn að stríða mér síðan um daginn, finn vel fyrir honum. Það er bara einhver aumingjaskapur í sumum í dag. Ég sem verð ALDREI veik, hef sko fengið að finna fyrir því undanfarið. Allavega skottaðist blessaða hálftímann og sökkaði dálítið feitt og fór 5.7 km á 56:19 mín. Frekar lélegt sko.

Annars gengur lífið sitt vanagang. Finnst febrúar hafa liðið eins og ég veit ekki hvað, man varla hvaða mánaðardagur er í dag, búið að líða svo hratt. Efnafræðin er LALA en ekki meira í bili. Hef ekki gefist mikill tími til að lesa. Þarf að komast inn í þetta betur. Er í fríi um helgina og verð að nota mér það og hana nú!:)

Best að fara að gera eitthvað af viti og hætta þessu væli. Ætla að sjá til hvernig ég verð á morgun. Bara get ekki farið svona en ég verð að fara hendast og komast af stað aftur, þoli ekki svona aumingjaskap, ARG! Þarf að losna við þetta ógeðslega spik. Smá útrás í gangi, anda inn, anda út... ;-)

*KNÚSÍKNÚS* Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Hæ snúlla farðu varlega,kannski betra fyrir þig að vera inná bretti meðan það er svona kalt..
Baráttukveðja Hildur
 
Ég kalla þig nú bara duglega að nenna að fara 5,7 km í þessari færð... öll mín hlaup fara fram innandyra! Haha! Mín lengstu hlaup utandyra þessa dagana eru út í bíl!!! :-P
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?