Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, febrúar 18, 2008

Sprettir... 

Að sjálfsögðu voru sprettir á matseðli dagsins samkvæmt mánudagsplani. Það sem kom mér talsvert á óvart var að tíminn var með skárra móti miðað við vegalengd, svei mér þá, ég bætti ekki í dag tímann í sögulega lélegu tímunum mínum, á alveg nóg af þeim í bili, fjúff:o)

Fórum tæpan einn Brúnaveg og þessa þrjá spretthringi inni í dal, þ.e. 500 m, 800, og 900 metra hringina. Svo bjó ég mér til einn 750 m hring í lokin. Fór alls 4 x 500 m, 2 x 900 m, 2 x 800 m og 1 x 750 m og plús upphitun og niðurhlaup. Þetta gerði alls að 10.31 km á 1.40.50 klst. sem er svona lala bara held ég. Held reyndar að ég hafi misstigið mig í einum stígnum, því ég er að deyja í ökklanum, hræðilega vont að stíga í fótinn núna. Það var nefnilega einn stígurinn í 800 m, þegar maður fór niður var orðinn svo afmyndaður og í vatnssulli, þegar maður fór hratt þurfti maður að passa sig vel en ég fann að ég steig vitlaust í eitt skiptið, guð hvað ég vona að þetta sé ekki mikið. Gekk annars bara allt í lagi í heildina nema eitt. Var að kaupa mér loksins nýjar hlaupabuxur, hélt ég hefði fest teygjuna vel en svo var ekki og hún týndist inni buxnastrengnum þannig að ég var alltaf að missa þær niður, þvílíkt vesen haaa... , en gott vesen er það ekki?;o)

Svo fór ég aðeins í pottinn á eftir og það var mjög næs. Ætlaði reyndar að prófa að synda 400 m og athuga hvað ég væri lengi en sumir voru frekar mikið latir að þeir nenntu því ekki, argagarg. Svona er það þegar maður fer með Telmu og kæróinum hennar í sund. Vorum búnar að lofa að vera duglegar að synda eeen ekki alveg í þetta skiptið;o) Svo er ég komin inn núna og strax út aftur með þeim skötuhjúunum í bíó að sjá myndina Jumper. Vona að hún verði góð blessunin:o)

Ákvað að spyrja herra foringja svona einusinni enn með þessa blessuðu þríþraut og hann var ekkert rosa ánægður og svo spurði hann hvað væri gert mikið. Ég nefndi þá við hann 400 m sund, 10 km hjól og þá skellti hann höndinni í borðið og sagði NEI! Þá sagði hann að þessi sprettur væri of mikill fyrir mig og ég yrði bara fyrir vonbrigðum með sjálfa mig. Ég skil alveg hans point of view, hann er bara að "passa" upp á mig eða þannig og ég met það miklis. Ég útskýrði svo fyrir honum að ég væri bara að prófa hvað ég gæti og sjá hvort ég kláraði það og þetta yrði bara æfing en ekkert meira. Hann gaf nú eftir og sagði OK, en ég veit ekki, held að hann sé pínu svekktur en mig langar að sanna fyrir sjálfri mér og öðrum að ég geti klárað þetta þó ég MJÖG skrýtin fitubolla sem kemst lúshægt. Ætla að stefna að því að gera þetta. Vona að ökklinn verði kominn í lag, wish me luck og krossa putta og tásur:o)

Efnafræðin gengur svona lala, hef ekkert náð að læra í gær og í dag, veitir ekki af því að fara að drífa mig í að komast inn í þetta dót. Held að heilinn á mér hafi ekkert pláss fyrir efnafræðivesen, get svo svarið það en ég reyni áfram, engin spurning.

Knús og kram, Moi sjálf

P.s. Þriðjudagur 19/2: Fór á Jumper í bíó í gær, fannst bara alveg ágæt. Fín afþreyingarmynd. Vinnur pottþétt ekki Óskarinn en er bara eins og ég segi fín. Er allt í einu núna orðin þvílíkt slöpp og hálsinn að lokast út af blessuðu kirtlunum og búin að snýta mér svona milljón sinnum í morgun, ARG! Verð að komast í þríþrautina. Ökklinn ekki alveg nógu góður, er komin í teygjusokk. Er það ekki eina sem hægt er að gera? Kannski hitakrem líka? Ætla að vera með teygjusokkinn í vinnunni í kvöld. Ég bara verð að komast í þríþrautina þó ég sé rosalega stressuð fyrir hana. Þarf bara að sanna svo mikið fyrir sjálfri mér og ýmsum fleirum hana nú! Þetta voru þrumuskrif, úff.. ;o) Ég og mínar yfirlýsingar alltaf:)

Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?