Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

miðvikudagur, mars 05, 2008

Vorið að koma....? PLÍÍÍÍS... 

Skrapp á æfingu í dag í rosalega flottu veðri og sólskini og AUÐU færi, mjög lovlý. Munurinn að byrja æfinguna í björtu og ENDA í björtu, þvílíkur munur að það er ekki hægt að lýsa því á nokkurn hátt. Ætli vorið ætli að fara að láta sjá sig, I hooope so, smá bjartsýnis- og Pollýönnukast:o)

Það var Fossvogur á matseðlinum í dag að venju po vednesdey og tók einhver 10 kvikindi. Fór að sjálfsögðu "hommann" Herra foringi var enn að sparka í rassinn á mér og leggja mér lífsreglurnar með að ég ætti að spretta eins og brjálæðingur allar brekkur sem ég færi og lengja skrefin og mín ákvað að taka hann á orðinu fyrst færið var orðið svona hrikalega gott. Eins og brekkan niður Háleitisbrautina og alla leið niður meðfram vinnunni minni (rosalega er maður góður með sig eftir heila 3 daga í nýju vinnunni;o) að Fossvogsvegi neðst. Það er langt síðan ég hef tekið svona geðveikt á. Gekk bara vel en var dálítið þreytt og þyrfti að pústa mig inn á milli, astmadrasl. Annars var ég bara nokkuð sátt við sjálfa mig eftir æfinguna sem er í fyrsta sinn í laaangan tíma. Kannski af því að snjórinn er farinn.... ....í bili;) Tíminn var ekkert sérstakur svosem, 1.35.20 klst. Dúllaði mér bara en tók brjálæðislega spretti inn á milli þannig að ég fékk að svitna talsvert:o)

Kláraði 3. vaktina á "lýtó" í dag og ég held barasta að ég sé að fíla mig mjög vel þar. Fullt spennandi að sjá og kynnast. Starfsfólkið mjög indælt og vill fyrir mann allt gera. Þó það séu fáir sjúklingar, allavega miðað við "hjartó", þá er sko alveg nóg að gera en það er bara krefjandi og skemmtileg áskorun. Ég var hrikalega stolt af mér í morgun að rata á bílastæðin fyrir aftan sem starfsfólkið leggur venjulega (en ekki fyrir framan aðalinnganginn og þar), rata í þvottahúsið og finna skápinn minn og rata þaðan úr kjallarnum á deildina mína sem er dálítið labb en hefur maður ekki gott af því, bara að skipuleggja sig. Allavega, ég þessi ratvilltasta manneskja í öllum heiminum afrekaði þetta í morgun í fyrstu tilraun (auðvitað búið að rölta einu sinni um þarna áður), JIBBÍSJIBBÍ, klappiklapp fyrir mér (þetta var kannski einum of montið;o)

Er einhver efnafræðingur á svæðinu? Hjjjááálllp (SMÁ neyðarkall hér!) Er í 3. lotunni núna og ég skil bara ekkert upp né niður í þessu. Samloðun efna og efnatengi eitthvað. 3. lotan að klárast á morgun og ég hef ekki komist vel í þetta efni, arg. Ætla að senda kennaranum e-mail í kvöld eða á morgun. Ætlaði að vera löngu búin að því en það er bara búið að vera svo brjálað að gera að það hefur varla gefist neinn tími til að gera neitt. Þarf að komast í stuð í þessu. Einhvern veginn held ég að litli heilinn í mér rúmi bara ekki neina efnafræði, í alvöru talað. Það er sama hvað ég les efnið yfir, það bara lekur bara í burtu og næst þegar ég les efnið yfir er eins og ég hafi aldrei lesið efnið áður, frekar asnalegt.

Svo ætti að vera æfing á morgun en sumir þurfa að fara að láta að draga úr sér endajaxl og laga skemmd þannig að það er víst ekki sniðugt að fara að hlaupa þannig að ég ætla út að hlaupa áður en ég á að mæta í tímann hjá tannsa og býst við að ég fari að Árbæjarstíflu og tilbaka. Svo er bara vinna um helgina. Wish me luck hjá tannsa:) Hann sagði að þetta yrði "lítið" mál og glottaði þegar ég fór frá honum síðast, svona miðað við tannviðgerðir dauðans fyrir nokkrum árum.

Knúsedíknús, Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Hæ fínn tími hjá þér í gær!!!Þetta kemur allt og ég tala nú ekki um þegar snjórinn er farinn þá verður þetta auðveldara..Bara segja þér ég fór í fyrra til tannsa að láta taka endajaxl hann var rúmar 2 klst. að reyna að ná honum. Hann var við það að gefast upp þegar kvikindið náðist loks..En þetta var ekkert vont fyrr en eftir á..En það er ekkert að marka að það þurfti að skera hjá mér og sauma..svo good luck..
kv.Hildur
 
Díí, þetta hefur ekkert verið smávegis hjá þér. Ái segi ég nú bara.

Gekk alveg ágætlega enda með æðislegan tannsa. Gerði við skemmdina og reif síðan jaxlinn úr sem gekk ótrúlega vel. Þurfti "bara" 3 deyfisprautur í átakið. Deyfingin er rétt svo að fara úr núna og finn fyrir þvílíkjum verkjum líka. Þá er það bara íbúfen við höndina til að bryðja:)

Knús, See you sæta:o)
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?