Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, apríl 10, 2008

Afsakið HLÉ... 

Úbbúbúbb.... hvað gerðist? Letipúkinn settist að hjá sumum, ætli það sé ekki best að bæta pínuponsu úr því:) Það hefur verið svo nóg að gera að það hálfa væri nóg. Liggur við að ég að hafi getað flutt í vinnuna í heila viku án þess að fara neitt en það slapp fyrir horn;o) Sjáum hvort ég muni eftir að hafa gert eitthvað sniðugt... hmm let´s see...

Fríða Rún sendi mér þoltöluna fyrir þoltest nr. 2. Ég fékk töluna 26 úr fyrsta testinu eða hljóp 1440 metra á 12 mínútum sem er mjög slakt og þá þurfti ég að bæta mig um 150 metra til að komast á það næsta stig sem er slakt. Núna fékk ég þoltöluna 29 eða hljóp 1550 metra á 12 mínútum sem er slakt og þarf að bæta mig um heila 400 metra til að komast á næsta stig sem er nokkuð gott. Hún reyndi að reikna út svo það væri þannig raunhæft að ég næði að komast á næsta stig að ég næði að komast á næsta stig eftir ár eða að bæta mig um 100 metra sirka á 4 mánaða fresti, dúddamía, ætli ég muni ná þessu einhvern tímann? Var nefnilega hálfdauð eftir testið og var á 7.8 allan tímann, frekar mikið lélegt haaa... Nú þarf þessi fitubolla að bæta sig og hel***** fitudrullan að fara í burtu, plíííísss.... er alveg geðveikt ógó eitthvað. Vildi einhvern tímann að ég færi að líta út eins og þessir frábærustu Laugaskokkarar í heiminum. Svo var þessi fræðslufundur 2. apríl og hann var fínn og mjög fræðandi og það voru t.d. kynntar niðurstöður úr þoltestum og svona ýmislegt og umræður o.fl.

Helstu æfingar undanfarna viku hafa gengið bara fínt. Hef ekki komist á allar Laugaskokksæfingar út af næturvöktum og þá aðallega þegar morgun/næturvaktir eru. Hef farið að hlaupa eftir morgunvaktina en þá fer ég úr vinnunni klukkan 14 og svo farið að sofa.. ZZzz..

Þetta er svolítið nördalega sett upp en maður er svona pínu latur í þetta skiptið, er sko að fara að vinna á eftir.. ZZzz.. Æfingarnar hafa bara gengið fínt fyrir sig svosum fyrir utan *hóst* ömurlega hallærislega tíma *hóst* Æfingin á mánudaginn var reyndar alveg hryllileg og ógeðslega erfið að það hálfa væri nóg og það er bara undirritaðri algjörlega að kenna. Það voru semsagt Brúnavegshringir, tók bara 3, ætlaði að taka 4 sko. Fór nefnilega beint á æfingu eftir næturvakt og svaf næstum yfir mig þannig að ég hljóp út án þess að borða og var ekkert búin að borða síðan um nóttina. Fyrsti hringurinn gekk bara lala og eftir það fór mér bara að líða illa. Fékk hryllilega hungurverki og fór að svima þvílíkt og fékk geðveika ógleði að ég hélt að ég myndi barasta gubba. Held ég hafi barasta fallið í sykri við þetta allt saman, hef lent í svona sirka tvisvar, þrisvar áður. Liggur við að ég fari að fá mér þrúgusykur til að hafa á mér á æfingum, eitthvað þarf ég að gera, það þarf ekki mikið til hjá mér. Reyndi að hanga eins lengi á æfingunni og ég gat og klárað hana. Þetta gerði að einhverjum aumum 8.3 km, frétti að hinir hefðu farið sirka 9.5 km þannig að það var svo sem ekki ógeðslega langt á eftir. Æi, þarf að passa að klúðra þessu ekki svona illilega aftur. Hélt að ég myndi bara deyja á æfingunni, pass po fitubollan þín!:)

Svo er það annað "keppnis"hlaup á laugardaginn og þá er það "köku"hlaupið sem margir ættu að kannast við eða a.k.a. Flóahlaupið. Þetta verður þá í annað skiptið sem ég tek þátt í því og það verður spennandi að sjá hvernig það mun fara allt saman. Vona að ég sökki ekki ógeðslega feitt og verði á svipuðum tíma og í fyrra eða helst betri (að sjálfsögðu;o) Eftir hlaupið ætla ég að skella mér í sveitina og nota helgarfríið góða í leti;O) Ætli ég reyni nú ekki að skokka pínu. Þessi vika gæti orðið afskaplega góð eða farið yfir 40 km ef allt gengur eftir, ó mæ lord bara. Svo verður maður að reyna að halda þessu við, þó svo það gæti verið alltaf plús eða mínus við þessa tölu, kannski aðallega mínus í bili haaa...

Keypti mér loksins nýja hlaupaskó og blæddi litlum 16.000 kalli fyrir þeim. Áttu reyndar að kosta tæp 20.000 en svona þegar maður er í svona æðislegum skokkhóp eins og Laugaskokkinu "mínu", getur maður stundum grætt og fengið afslátt, t.d. í Afreksvörum;o) Er búin að prófa Asics, núna síðast Mizuno sem eru alveg að deyja frá mér, búin að nota þá svo mikið greyin. Fríða Rún ráðlagði mér að fá mér New Balance núna og það verður spennandi að sjá hvað kemur úr því. Daníel í Afreksvörum (rosa flott búðin, komin á nýjan stað og stærri:) mældi fæturna hátt og lágt og fann hvað ég þyrfti og auðvitað innanfótarstyrkta. Ætla að prófa þá aðeins um helgina og sjá hvernig gengur á þeim, hope for the best. Þeir virkuðu allavega fínir og ógeðslega flottir, tími varla að nota þá.. hehe...

Svo er það bara vinna í nótt og helgarfrí, jibbí. Er búin að vinna í heila viku samfellt með einum svefndegi. Svo fer ég beint af næturvaktinni út á heilsugæslu í blóðprufu í tékk. Það er bara það versta að vera fastandi frá miðnætti (þó svo ég hafi bara gott af því:) og það í vinnunni þar sem er frekar heitt á deildinni og á eftir að vera örugglega DÁLÍTIÐ þyrst, úff, þetta verður challenge. Það verður gott þegar þetta verður búið og ég vona að komi gott úr þessu öllu saman og svo fer ég til heimilislæknisins í næstu viku að fá úr prufunum og sjá hvað hann ætlar að gera í þessu hjartaveseni ef það er eitthvað vesen á því og þetta blessaða bjúgvesen.

Jæja, held að ég sé komin með allt update að þessu sinni. Pósta örugglega ekki fyrr en eftir helgi, þegar ég kem heim úr sveitinni, jafnvel á miðvikudag.

Hafið það ógó gott um helgina fólkið mitt, megið vera pínuponsu dugleg að kvitta, er svo frek að það hálfa væri nóg, hehe.... :þ

KNÚSEDÍKNÚS, Moi sjálf

Athugasemd(ir):
Þú ert hrikalega dugleg mín kæra, gaman að heyra NB skóna hvernig þú fílar þá!! Ég er öll að koma til svo að ég stefni á æfingu strax eftir helgi það verður gaman að sjá þig..
kv.Hildur
 
Þú ert hrikalega dugleg mín kæra, gaman að heyra NB skóna hvernig þú fílar þá!! Ég er öll að koma til svo að ég stefni á æfingu strax eftir helgi það verður gaman að sjá þig..
kv.Hildur
 
Já´já bara setja þetta mörgum sinnum inn þú eyðir öðru
he he
kv.Hildur
 
Dugnaðurinn í þér! ;-)
 
Hæ skvíz:) hrikalega ertu dugleg að bara skammast sín eiginlega;)kossar og knús:*
 
Gaman að sjá þig í kökuhlaupinu, vona að medalían hafi fundist og sé nú komin í bílinn ;) kv. Agga
 
Takk sömuleiðis Agga mín, mjög gaman að hitta ykkur. Hann var sko ekki lengi "gaurinn" að redda medalíunni sko og er sko hjá mér í honum Óla mínum og prýðir sig vel þar;o) Takk fyrir hjálpina mín kæra:o) Sjáumst:)

Knús Telma mín. Vonandi gengur vel með þú veist;)***
 
Hæ og takk fyirr kveðjuna. Krílið er væntanlegt 28. maí sem getur svo alveg dregist um tvær vikur eða svo. Gaman að fylgjast með þér. Halltu áfram að vera svona rosalega dugleg.Ég læt svo sjá mig á æfingu með haustinu. Kv. Guðrún Lauga
 
Skrifa ummæli
8 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?