Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, júní 19, 2008

"Mamma, er hún ekki feit!?" 

Smá tilkynning: Sumir verða í viðtali á 24 Stundum á morgun, laugardag 21. júní. Dúddamía maður.
Fylgist endilega með. Ó mæ lord.. hehe.. ;o)
Þetta fékk ég að heyra þegar ég mætti sirka 6 ára krakka á labbi með mömmu sinni í gær þegar ég var að hlaupa hjá Glæsibæ. Voðalega eru börn hreinskilin haaa... Ég hugsaði, jibbí og æðislegt og glotti innra með mér; gott að sannleikurinn kom loksins í ljós. Fannst dálítið fyndið að mamman sagði ekki múkk, var ekkert að segja að það væri ljótt að segja svona eða neitt. Allavega, tók 13.5 km á æfingunni í gær og það var að sjálfsögðu Fossvogurinn á miðvikudegi. Ekkert svaðalegur tími, sirka 2.10 klst. Var svo asskoti mikill mótvindur frá og með Nauthólsvík að það hálfa hefði verið klikkað meira en nóg en maður kláraði á endanum. Æfingin byrjaði nú heldur ekki vel þar sem ég var að deyja í elsku, yndislegu leggjunum mínum og kálfunum. Fyrstu 3 km voru algjört hell skal ég segja ykkur. Vældi aðeins í Fríðu Rún astmaþjálfara og hún skipaði mér í nudd þannig að ég er að fara til sjúkranuddara á morgun. Maður verður að hlýða yfirboðurum sínum, er það ekki?;)

Já, og gleðilegan þjóðhátíðardag þarna um daginn. Það var ansi góður dagur þótt ég segi sjálf frá. Hef bara aldrei verið neitt svakalega spennt á 17. júní, ekkert fundist það neinn sérstakur dagur en maður var bara í nokkuð góðu stuði. Var úti síðan fjögur um daginn í alveg snarbilað góðu veðri, enda sást það á bringunni á mér og handleggjunum, VEL brunnin að það hálfa væri hrikalega nóg og þurfti ekki mikið til, búin að vera á röltinu og settist niður í max korter, eða tuttugu mín. Þarf ekki meira en það. Svíður talsvert mikið í þessu og það er líka slatti mikill hiti í þessu. Eeeen gott að vera að vinna á brunadeild haaaa... ne, ætla nú ekki að gera svo mikið mál úr þessu. Er orðin svo vön þessu þó þetta sé nú ekki mjög sniðugt til lengdar. En hvernig verð ég í sólarlöndum ef ég verð svona á ÍSlandi?? Hehe... :-) Fór með 2 vinkonum mínum niður í bæ og röltum um og settumst aðeins í grasinu á Arnarhól, löbbuðum upp og niður Laugaveginn svona milljón sinnum. Dúlluðumst bara hingað og þangað. Fórum svo á tónleika á Ingólfstorgi, það var bara fínt. Bara ansi góður dagur.

Það er búið að vera svo brjálað að gera að ég hef ekki nennt að blogga og það kallast á góðri íslensku LETI! Síðasta vika var sú besta sem ég hef átt í hlaupum og stússi. Fór í 52.93 km eða eitthvað svoleiðis plús 12.7 km í labbitúrum eða sirka about það þannig að ég er bara nokkuð kát. Kemst þótt hægt fari og hana nú!:) Þessi vika stefnir í ágæta viku.

Fórum með mömmu að borða á Grand hótel á föstudagskvöldið og það var rosalega gaman og yndislega kósý. Loksins systkinin og múttan saman á einum stað. Alltaf allir uppteknir, nóg að gera. Pápi gamli hefur ábyggilega fylgst með fólkinu sínu á himnum, alveg pottþétt:) Æðislegur matur og frábær tónlist, algjör snilld barasta:-) Á laugardaginn var haldið á Skógar og hitt á ættingjana úr föðurættinni og það var mjög ljúft að hitta alla þó maður hafi svo sem farið milljón, trilljón sinnum út á Skógar. Maður mundi ekki alveg öll nöfnin enda slatti margir í ættinni en það kom á endanum:) Bara góður dagur í frábæru veðri. Fór með Helgu sys og familý austur og þegar við fórum heim, stoppuðum við á Selfossi hjá Gullu sys og hennar familý og enduðum í grilli og ísköldum bjór, namminamm. Grey Helga sys keyrði allan tímann og þegar við vorum á leiðinni tilbaka á Selfoss, vorum við öll svo þreytt að sofnuðum öll í einhverja stund á sama tíma. Hún viðurkenndi að hafa verið pínu þreytt sjálf en hún er úr þessari hörku familýju að hún reddaði þessu auðveldlega:)

Jamm, æfingar í þessari viku, mjög gróflega yfirfarið. Fór ekki á Laugaskokksæfingu á mánudaginn, treysti mér ekki í spretti, aumingi!! Var að byrja með einhverja kvefdrullu, þannig að ég drattaðist rólega 10 km ein fyrr um daginn, var bara OK. Dúllaðist á sirka 1.30 klst. Tók aftur um 10 km á þriðjudaginn á svipuðum tíma. Svo var það náttúrulega feitabollan í Fossvoginum í gær og í dag ætlaði ég á Laugaskokksæfingu en hætti við hana og ákvað að prófa að fara út í Heiðmörkina og dúlla mér og dró með mér vinkonu með. Sendi auðvitað herra foringja status report um síðustu viku því ég hitti hann náttúrulega ekki í dag. Er orðin svo slæm í leggjunum og kálfunum þannig að Fríða Rún vildi að ég færi að skokka meira á grasi og svo möl. Allavega ekki malbiki og ekki skemmir öll þessi fegurð í Heiðmörkinni fyrir. Tók nú reyndar bara 5.6 km on 60 minuets en vikan er komin í sirka 39 km og á eftir að taka eitthvað meira í viðbót þannig að þetta er allt í lagi. Fórum svo í Suðurbæjarlaugina í Hafnarfirði og það var mjög ljúft. Varð reyndar hrædd smástund þegar ég hélt að það liði yfir mig í heita pottinum. Ætlaði að snúa mér aðeins til að sóla bakið aðeins en þá fór ég að sjá bara hvítt og leið asnalega en þurfti aðeins að drjúpa höfðinu og jafna mig. Þetta var hræðilega óþægilegt. Er skíthrædd um að blóðþrýstingurinn sé að stríða mér plús að ég hafði ekkert borðað og varla drukkið neitt síðan hálfeitt (klukkan var korter yfir sjö) Verð að passa mig á þessu.

Gleymi ábyggilega einhverju. Býst við að ég kíki í sveitina um helgina og kannski enn austar í gömlu sveitina og kíkja á fólkið sitt og kannski dytta að pabbasteini og mála í stafina á honum og svona ýmislegt en það kemur í ljós hvort það verður eða ekki en samt möguleiki. We´ll see:) Svo er það sjúkranudd á morgun, vona að hún geti gert gott fyrir elsku fæturna mína og þetta sé ekki einhver þvílík móðursýki í mér, er orðin ansi góð í því:o) Jæja, best að fara að henda sér í bólið, smá svefngalsi í boði mín sjálfrar... ZZzzz..

Góða helgi elskurnar mínar and I see ya when I see ya:)

Knús í krús í mús í knús, Moi sjálf

SMÁ bruni á næpuhúðinni á sumum...

Þetta er eftir hlaupaæfinguna í gær...
Stórfamilían, vantar bara pápa sem er nú samt á staðnum:)

Namminamm...

Mí and mútta...

Athugasemd(ir):
Hæ skvís, rosalega ertu dugleg!!! He he já börn ertu ótrúlega hreinskilin, ég á nú einn 6 ára og hann sagði við mig í gær: Mamma varstu einu sinni mjó!!! Thja já fyrir svona ca. 20 árum :o)
kv.Hilla
 
Verð vöknuð fyrir allar aldir til að sjá blaðið!!Kemurðu á æfingu á morgun?
Kv.Hildur
 
Nei, verð félagsskítur:o( Er að fara í sveitina núna. Bara knús til þín sæta mín.

P.s. mæli með þessum nuddara sem ég fór til í dag, ef þig vantar nudd, hún er æðisleg og aumingja leggirnir fengu að finna fyrir því;o)
 
Flott viðtalið!!! Myndin fannst mér sérstaklega flott bæði sú sem er á henni og svo var hún einstaklega vel tekin ;o)
Kv.Hildur ljósmyndari
 
Flott viðtal! :) algjör gella.
 
Skrifa ummæli
5 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?