Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

þriðjudagur, júlí 08, 2008

Bloggleiði dauðans... 

Jæja..... You have to very excuse me pípól. Búin að vera með bloggleiða dauðans að það hálfa væri nóg, bara gjörsamlega ekkert nennt að blogga þannig að ég skal reyna að bjarga því núna smá í bili:)

Síðasta vika var hin ágætasta í hlaupum eða 52.7 km. Var samt ekkert í geðveiku hlaupastuði samt. Gerði það sem ég átti að gera en það var bara enginn fílingur í því. Kemur þetta ekki fyrir hjá öllum einhvern tímann? Fór meðal annars í Heiðmörkina Jórunni í astmahópnum, það var algjört æði en ótrúlega mikið erfitt og sumar brekkurnar, vá maður! Svo var það Fossvogurinn og Elliðarárdalurinn og margt fleira.

Fór í nudd aftur á föstudaginn og það var algjört æði fyrir utan þegar hún var að taka á beinhimnunni og öxlinni, bara ÁI!! Komst ekki hjá því að anda í þetta skiptið þegar hún var að taka á beinhimnunni og vildi að ég sýndi sér að ég væri að anda, arg, þetta var hræðilegt en samt mjög þarft. Það er svo skrýtið að ég er mjög slæm öðrum megin í líkamanum. Fer núna alveg reglulega fram að maraþoninu. Vorum að skipuleggja hvernig við ætlum að hafa þetta:) Fer næst mánudaginn til hennar.

Æi, annars er bara mest lítið að gerast í bili. Bara brjáluð vinna og það er alveg hrikalega nóg að gera að það hálfa væri nóg. Voðalega hrædd um að þessi vika verði ekki góð í hlaupum, vona að það klúðri ekki öllum undirbúningnum hjá mér, ARG! Er að bara búin að vera hálfslöpp síðan í gær. Búin að hnerra og hnerra og snýta eins og kreisý og hálskirtlarnir í stækkunarstuði hjá mér að það hálfa væri nóg og búin að sofa út í eitt eftir vinnuna í dag. Hunskaðist 10 km í gær og var alveg búin á því og treysti mér síðan ekki í Heiðmörkina í dag. Astminn er eitthvað að stríða ofan í þetta, þannig að ég þorði ekki að fara í dag. Ætla að reyna að fara á morgun en ætla að sjá til. Er ég algjör auli að fara ekki ef ég verð slæm? Fæ svo slæman móral út í sjálfa mig að það hálfa væri nóg:o/

Jæja, reyni að hætta þessu væli í bili. Allavega, I'm alive:o)

KNÚSEDÍKNÚS, Moi sjálf

P.s. Takk innilega fyrir allar sætu afmæliskveðjurnar um daginn elsku fólkið mitt:)

Fimmtudagur 10. júlí: Dæmigert, feitabollan búin að versna síðan síðast og vaknaði alveg raddlaus í morgunsárið og stífluð út í eitt, ARG!! Bara búin að fara 10 km í þessari viku. Get bara gert mér það að hlaupa í þessu, astmadraslið í samblandi við þetta allt. Verð að koma sterk tilbaka í næstu viku og massa þessa blessuðu 50 km svo ég klúðri ekki hlutunum. Þetta er það eina sem ég bað um að gerðist ekki fyrr en eftir 24. ágúst haaa...

Stórt knús í daginn, Moi sjálf
Kvittkvitt...
Athugasemd(ir): Skrifa ummæli
0 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?