Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, júlí 17, 2008

Helgarfrí:) 

Ó já, helgarfrí á næsta leyti og ekki veitir af. Búið að vera brjálibrjál að gera í vinnunni að það hálfa væri nóg, er alveg búin á því. Ætla að skella mér í Þórsmörk með Lindu Björk minni og ætlum að dúllast og labba eins og kreisý, detta kannski pínu í það og hafa bara gaman, sjibbíjibbí:o)

Önnur samæfing astmahópsins var í gær og það var bara rosa gaman. Fyrsta æfingin mín í 9 daga eða eitthvað og vá hvað ég sökkaði svo feitt að það hálfa væri svo mikið meira en nóg. Tók einhverja pínu 3.25 km á 28 mín. Það var eins og ég hefði aldrei hlaupið áður, náði varla andanum og svo voru leggirnir að stríða:o/ Það var greinilega mikið í lungunum ennþá eftir þessa blessuðu hálsbólgu. Er ekki frá því að kirtlarnir hafi stækkað pínuponsu aftur. Vaknaði nánast raddlaus og með óþægindi í morgun en það jafnaði sig með tímanum og ég var ágæt. Er bara slæm á morgnana og á kvöldin núna. Astminn er eitthvað að stríða mér líka í þessu. Verð að ná þessu drasli alveg úr mér svo ég geti gert eitthvað af viti. Svo gerðum við teygjuæfingar saman og það var bara kósý og fínt. Eftir æfinguna lét Fríða Rún mig fá sérstakar teygjur svo ég gæti gert æfingar með leggina. Síðan uppgötvaði ég að ég týndi öðru buffinu mínu á æfingunni. Var með eitt um hálsinn. Fór einhvern tímann úr peysunni og ætli buffið hafi ekki farið með. Þegar ég kom heim fór ég strax að labba sama hringinn og ég fór en ég fann það ekki. Ætli einhver hafi ekki stolið því frá mér, ARG:o(

Fór í nudd á mánudag til Valdísar og það var enn og aftur hryllilega vont. Hún lét mig anda eins og ég hefði aldrei andað áður. Þetta var svo drulluvont að ég var farin að grenja næstum því. En þetta hafðist. Henni fannst einhver smá þrýstingur væri aðeins að losna í beinhimnunni, en það er bara jákvætt. Fer næst til hennar í byrjun ágúst.

Þið kannski sáuð í kommentunum í færslunni á undan að ég mun fara hálft maraþon í ágúst en ekki "the big thing" eins og ég er búin að vera að stefna að í sumar. Beinhimnubólgan er bara miklu verri en ég hélt allan tímann og ég ákvað í samráði við Fríðu Rún að minnka hlaupið niður í hálft sem er fínt og reyna að bæta tímann smá. Verð mjög dugleg að mæta í nudd þangað til og gera æfingar fyrir leggina og svoleiðis. Mæti svo spræk til leiks í heilt maraþon á næsta ári og Laugavegurinn einhvern tímann við gott tækifæri hvenær sem það verður. Þetta eru langtíma- og aðal markmiðin mín. Sjáum til hvernig það gengur:)

Jæja, þetta verður bara frekar stutt núna, en hafið það sem allra best um helgina og....

....C jú when I see you:)

KnÚs, Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Hæ skvísa mín.
Leiðinlegt að þú skulir vera meidd. Beinhimnubólga er ekkert grín.
Kannski sniðugt að hjóla og synda ef þú þarft að minnka hlaupin ?
En ... þaðsemégvildisagthafa .. það er bloggfærsla hjá mér í dag sem ég veit að þú fílar :o)
Bibba
 
Takk fyrir þetta mín kæra:) Er einmitt búin að vera að hugsa eitthvað til þín, en skrýtið;o)

Frábært færsla hjá þér, skrifaði óvart annað blogg inni á blogginu þínu haaa... ;o)

Æi, ég er ekki búin að vera nógu dugleg að synda og hjóla:o( Hjólið mitt er eiginlega hálfryðgað og leiðinlegt og hef ekki getað farið með það í viðgerð þar sem ég hef ekki stóran bíl til að skutla því. Allt of langt síðan ég hjólaði síðast, bara skömm að því:o/

Knús:)
 
Þú ferð heilt þegar þú ferð það! ;-) Þangað til rúllarðu öllu hinu upp!
 
Skrifa ummæli
3 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?