Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

föstudagur, júlí 11, 2008

Status quo... 

Allt við það sama á bænum hér. Er búin að vera raddlaus og fín síðustu daga að það hálfa væri nóg. Það dregur nú alltaf mikið til tíðinda þegar sumir sem heyrist MJÖG vel til venjulega eru mjög þögulir og hásir, haaa... ;o) Held nú samt að þetta sé að koma til. Er nánast hitalaus, bara nokkrar kommur. Kirtlarnir eru frekar stórir ennþá og er talsvert rám sem er bara ágætt miðað við að ég var alveg raddlaus í gærmorgun. Neyddist til að hringja mig veika í morgun því ég var hundslöpp eitthvað í gærkvöldi. Endaði svo líka á að ég svaf ekkert í nótt, fékk sinadrátt dauðans og fékk hræðilega martröð um að ein systir mín væri dáin og krílin hennar áttu engan að. Þetta var hræðilegt. En ég fer að vinna í nótt (þoli ekki þegar ég neyðist til að hringja mig veika, fæ alltaf svo þvílíkan móral yfir því eins og að missa af hlaupaæfingum.. eheheee... ;o) og alla helgina.

Svo er það Laugavegurinn um helgina hjá hlaupurunum. Vildi óska þess að ég gæti verið þarna í Þórsmörk og tekið á móti fólkinu og hvatt það áfram. Leyndur draumur hjá mér að taka þátt í þessari keppni sometime, ætli feitabollan geti það einhvern tímann á ævinni? Megið alveg segja ykkar skoðun á því.. hehe.. ;o) Langar allavega:) Vil óska öllum Laugaskokkurunum mínum innilegs góðs gengis á morgun, segi bara stórt TUTU!! :)

Hey já, ætla reyndar að fara sjálf að fara í Þórsmörk næstu helgi og hlakka ógeðslega mikið til. Hef aldrei farið þangað, viðurkenni það hér með. Ó god, hversu lame er það þegar ég bjó ótrúlega stutt frá og hafði talsvert góð tækifæri til að fara þangað?? Allavega, ætla að draga vinkonu mína með mér og ætlum að dúlla okkur og labba út um allt alla helgina, jibbí:o) Redda sumarfríinu mínu sem ég eyddi í að hlaupa og gerði ekki neitt annað að ráði;-)

Jæja, ætlaði bara að láta vita af mér. Hlaupavikan verður eins og ég segi ekki til að hrópa húrra fyrir út af þessu veikindaveseni. Reyni að vera dugleg og bæta hana upp. Svo er bara vinna og aftur vinna um helgina og nudd á mánudaginn, get ekki beðið, ja svona fyrir utan að nudda beinhimnuna og öxlina.. hehe... ;o)

Elsku Agga, innilega til hamingju með afmælið í dag, njóttu dagins og gangi þér sem allra best á morgun:o) Eigið góða helgi elsku fólkið mitt hér og þar og allsstaðar:o)

RISA, RISASTÓRT KNÚS, Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Sæl Sveinbjörg - ég er búin að fylgjast aðeins með þér í gegnum bloggið þitt og dáist alveg af þér, sýnir fólki það að astmi og annað þarf ekki að hindra fólk í hreyfingu og hvað þá í langhlaupum!
Langar svoo að kommenta smá hjá þér þótt ég þekki þig ekki neitt.
50km á viku er eitthvað sem mjög margir væru fljótir að gugna á get ég sagt þér - þú hefur rúllað ansi mörgum svoleiðis vikum upp og líkaminn þarf auðvitað sína hvíld þegar hann er veikur, við erum ekki aumingjar ef við verðum veik heldur mannleg :)
Ég hef fulla trú á því að þú klárir þetta maraþon með stæl í ágúst - eins og ég segi alltaf: þegar fæturnir eru búnir, tekur heilinn við ;)
Þú hefur hlaupið hálft maraþon (og margt fleira!) og sama hvað tautar og raular hefur þú lagt helling á þig fyrir þetta hlaup og gefur öðrum gott fordæmi.
Allt hefur sinn tíma og það vita hlauparar best, árangur fæst ekki nema með síendurteknum æfingum og þegar maður nær honum er hann sætari en allt sætt.
Mundu að trúa ávallt á sjálfa þig og láttu ekkert hindra þína hlaupadrauma skvísa, vertu bara ákveðin (en þó um leið skynsöm) og stolt af þér - því þú mátt sko vera það!
Varðandi Laugaveginn í framtíðinni...ef þú vilt þá getur ÞÚ! :)
Þú stendur þig vel og munt gera það áfram, áfram þú ;)
Sjáumst á hlaupabrautinni!


Hlaupakveðja,
Birna
www.birnavardar.wordpress.com
 
Hæ Birna og takk innilega fyrir þetta. Verð eiginlega að viðurkenna líka að ég hef kíkt aðeins á bloggið þitt í gegnum hlaup.is (alltaf á leiðinni að kvitta.. hmm.. ;o) og þú ert bara frábær stelpa og þvílíkur dugnaður í þér:)

Takk innilega fyrir hvatninguna, hún er mér mikils virði og hjálpar mér mikið áfram. Það er orðið svo að ég er búin að ákveða að breyta til um vegalengd í ágúst:o( Beinhimnubólgan er bara að stríða mér svo mikið að ég ákvað í samráði við astmaþjálfarann að fara í hálft maraþon þetta árið. Veikindin núna settu líka strik í reikninginn í æfingunum. Maður verður bara að massa þetta á næsta ári í staðinn og verða miklu betri:) En þetta eru dálítil vonbrigði en maður verður víst að vera skynsamur.

Sjáumst endilega á hlaupum og takk aftur fyrir kveðjuna:o)

Kv. Sveinbjörg María
 
hæ sæta... þú ert svo dugleg skvís :) og flott viðtalið við þig :D
 
Nei hæ krúttan mín, er mín bara hérna:o)Langt síðan síðast, þurfum að fara að gera eitthvað í því haaaa..

Takk fyrir þetta sæta mín:o)
 
Hæ hæ skvís. Ég er ánægð með að þú farir hálft og gefi þér meiri undirbúning í heilt. Ekki það að ég efist um að þú hefðir klárað!!
Stefnum að heilu að árir ef guð lofar :o)
kv.Hildur
 
Takk fyrir þetta sæta mín. Já, þetta er víst það skynsamasta í bili. Beinhimnubólgan er svo hörð viðureignar þessa dagana að það hálfa væri nóg. Var í nuddi áðan og það var viðbjóðslega vont, láku bara tárin.

Við verðum flottar á næsta ári í maraþoni, alveg þokkalega:O)
 
Láttu þér batna!
 
Takk fyrir mín kæra:) Vonandi skemmtirðu þér vel úti í útlöndum;o)
 
Takk fyrir afmæliskveðjuna :) Ekki svekkja þig á því að fara ekki heilt núna í sumar, það kemur sumar eftir þetta. Það er fyrir öllu að sitja ekki uppi með þrálát meiðsl. Efast ekki um að þú átt eftir að standa þig vel í hálfu í sumar og fara svo maraþon og Laugaveg þegar fram í sækir. Kv. Agga
 
Takk fyrir þetta Agga mín:)

Það er víst best að vera skynsamur í þessu þó það hafi verið pínu svekkjandi því við ákváðum þetta svo seint en ég reyni besta í hálfa núna og hver veit, Laugavegurinn og heilt maraþon, það verða markmiðin sem ég stefni á. Pottþétt heilt á næsta ári ef ekkert kemur upp á og Laugavegurinn who knows;o)
 
Skrifa ummæli
10 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?