Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

föstudagur, október 10, 2008

Ökkladrasl :-( 

Það er barasta ansi lítið búið að gerast hjá mér síðustu dagana nema að vinna að ég veit varla hvað ég heiti eða þannig og auðvitað er ég í vinnunni þegar ég pára þetta, hehe... :þ
Æfði ekkert í viku út af ökklanum eftir Esjulabbið þar síðustu helgi. Búin að vera þvílíkt aum að það hálfa væri nóg. Var mjög bólgin fyrstu 2 dagana og haltraði mikið en það jafnaði sig síðan að mestu en vesenið er þegar ég sný ökklanum til hliðar eða upp þá er stingandi verkur eða óþægindi. Búin að vera með þvílíkt samviskubit yfir þessu æfingaleysi að það hálfa væri nóg.

Fór í nudd til Valdísar fyrir viku síðan og ég hélt ég myndi deyja,
þetta var svo hrikalega vont. Þegar hún tók á leggjunum, gretti ég mig víst og hélt niður í mér andanum. Hún sagði við mig að ég mætti alveg gretta mig eins og ég vildi en yrði eiginlega að anda fyrir sig.. hehe.. þrjóskuormurinn ég;o) Svo tók hún á ökklanum og í fyrsta sinn æpti ég smá til að láta vita af mér. Hún hitti akkúrat á vonda punktinn en sagðist þurfa að taka hart á honum upp á blóðflæðið, úff verý, verý bad sko...

Byrjaði reyndar svo aðeins í þessari viku að reyna að koma mér í æfinga gang en með misjöfnum árangri svo sem. Búin að fara í smá sund. Svo á þriðjudag rölti ég eða skokkaði MJÖG hægt um 5.0 km á sirka 50 mín í Kópó. Sko, var að leita að fyrirbæri sem kallast Kópavogströppur sem undirrituð neyðist til að segja að hún hafi ekki fundið að það er eiginlega ekki fyndið. Var eiginlega hálfhræðilegt. Þannig að ég biðla til Kópavogsbúa og spyr: Hvar eru þessar blessuðu Kópavogströppur??? Veit að þær eru hjá einhverri kirkju en sjónlausa ég sá ekkert í myrkrinu, en neyðarlegt! Ætlaði að hitta á eina sem er í astmahópnum en komst ekki á æfingu sem var í kvöld en ætlaði að fara þessar "blessuðu" Kópavogströppur en aldrei hitti ég á hana:o/ Það er alveg greinilegt að ég er ekki úr Reykjavik $:-þ

Svo var samæfing hjá fjallaastmahópnum hjá Fríðu Rún í dag. Verður alltaf einu sinni í mánuði þolæfing með Fríðu Rún og síðan náttúrulega fjallganga líka. Þetta var bara rosalega gaman þrátt fyrir að það væru brekkuhlaup á dagskrá. Vorum inni í Laugardal. Það var hlaupið upp brekkuna sem maður fer upp frá Skautasvellinu og þar og upp á Laugarásveg og labbað niður tilbaka. Það er brekka sem ég hef aldrei verið mjög sátt út í því mér hefur gengið ógeðslega illa að komast upp hana nema að labba hana hálfa upp, aldrei getað skokkað alla leið eeenn... það tókst í dag, jibbísjibbí!! Komst alla leið upp án þess að stoppa og gerði það 4 sinnum. Ótrúlega glöð. Tók reyndar sinn toll í lokin þegar ég var farin að haltra aðeins. Þá var hnéskelin farin að stríða mér aðeins, alveg eins og hún sé laus á fætinum, óþægileg tilfinning og svo var ég farin að finna meiri óþægindi í ökklanum en venjulega. Þegar við vorum að rölta tilbaka út í Laugar missteig ég mig aðeins þannig að það var ekki betra fyrir ökklaskömmina og enda með því að vera slæm núna í kvöld og nótt, ARG!! Alveg ógeðslega pirrandi. Fríða Rún var sammála mér að ég ætti ekki að fara í sprettæfingar á mánudaginn eins og ég ætlaði mér. Ætlaði að koma galvösk loksins á Laugaskokksæfingu en óttast að það frestist aðeins, sorry:o/ Fer að koma... Ætla að prófa að synda meira og jafnvel hjóla aðeins í ræktinni. En var annars mjög ánægð með æfinguna í dag:)

Missi líklegast af næstu fjallgöngu sem er þann 18. október. Er að vinna þá:o( Farið verður á Móskarðshnjúk eða hvað þetta heitir. Verð á næturvaktahelgin og ekki hægt að skipta, snöökt:/

Úff á maður nokkuð að vera að minnast á þetta kreppudæmi. Æi, held ekki. Maður er orðinn hálfþunglyndur að hlusta og horfa á fréttirnar, ó god segi ég nú bara. Vona að þetta lagist someday.. hmm..

Best að fara að hætta þessu bulli í bili. Er komin með svo mikinn svefngalsa að það hálfa væri nóg. Það þýðir bara eitt og þýðir að ég þurfi að fara að gera eitthvað af viti.

Knús í krús og rosalega góða helgi, Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Tröppurnar eru eiginlega á móti vínbúðinni / bakarí á Dalveginum (Europrís er þarna líka aðeins lengra). Þú getur lagð bílin þar og labbað yfir. Tröppurnar eru á milli íbúahúsum. (Kirkjan er enn lengra frá.)
Gangi þér vel.
 
Passaðu þessi meiðsli hjá þér! Verður að taka því rólega þangað til að þetta jafnar sig, ekki viltu að þetta verði eitthvað langvarandi dæmi!
Haha ég er svo mikill lúði... ég að segja eitthvað svona og búin að vera með gallaða mjöðm í marga mánuði því ég kann ekki að hvíla! Hehe! :-P
 
Takk fyrir ráðin með Kópavogströppurnar hvaða góði einstaklingur sem gaf þau:o) Ætla að kíkja þarna um á morgun:)

Hehe góð Júlíana, ætla að reyna að passa mig en maður er bara með svo mikinn móral að mæta ekki á æfingar, arg!:) En maður verður að passa sig, það er víst þannig að þú ungfrúin mín, verður líka að passa þig:) Ertu "memm" í sund haa.. eða hjól í Laugum;-) Hmm..
 
Ég er memm í hjól í World Class í Spönginni! :-P Hehehe! Er bara með aðgang þar, við BHS-ingar fáum frítt í World Class þar og hvergi annars staðar! Hneyksli! :-P
 
Ég er "memm" í hjól í Spönginni:) Þú verður bara að leiða ratvilltu hænuna um staðinn og þá er Sveinbjörg skrýtna ánægð:o)
 
Skrifa ummæli
5 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?