Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, apríl 26, 2007

Er á lífi;o) 

Hellú pípól:o) Vildi bara láta vita að ég sé á lífi;o) Tölvan ákvað að fara í verkfall hjá mér, ARG! Ætla að reyna að redda blessuninni. Fékk að blogga hjá Lindu Björk minni:o)

Allavega er ég búin að vera nokkuð dugleg í þessari viku þótt ég segi sjálf frá:o) Fór reyndar ekki á æfingu á mánudag en það var bara kreisí dagur. Var kölluð á næturvakt á sunnudagskvöldinu og svo í hádeginu á mánudeginum þurfti ég að fara í jarðarför og svo átti ég aðra næturvakt um kvöldið þannig að ég var útkeyrð.

Var heví dugleg í gær. Byrjaði daginn á að fara í sund og synda 1 km sem hefði getað verið betra en þetta var svo sem ókei. Síðan fór ég á æfingu og fór 10 km um Fossvoginn og þvílíkt hvað var erfitt að fara brekkuna hjá Borgarspítalanum en ég hafði það af, sjúkkett. En ég þurfti samt því miður að labba pínu:o/ Er nefnilega að prufuhlaupa nýju Asics skóna og vá hvað ég var að deyja í fótunum eftir á en þetta gekk miklu betur heldur en síðast:o)

Svo síðast en ekki síst var það æfingin í dag, ó mæ lord. Foringinn kom með þá yfirlýsingu við mig að bráðum færi ég að hlaupa hálft maraþon, ó mæ lord tvisvar segi ég nú bara;o) Þannig að að hann vildi lengja fimmtudagana sem eru komnir nota bene í 14 km og fara 18 km sem og ég gerði í dag, aha, Sveinbjörg María fór 18 km!! Það gekk svona og svona, bara lala. Ástæðan fyrir því eru meðal annars nýju skórnir og svo var mín að reyna að rata afganginn af leiðinni sem gekk ja, bara fínt, miðað við hvað ég er óttalega góð í að villast... HEHEHE... ...Og talandi um brekkur dauðans, þá hitti ég á eina slíka þarna inn frá og foringinn lagði áherslu á að ég labbaði hana sem ég var sko þokkalega sátt við. Annars var ég orðin ansi þreytt í lokin og þurfti að labba svolítið mikið sem ég er ekki stolt af eeen.... ég kláraði þetta verkefni. Þetta verður ekkert mál. Bara hlaupa skóna betur til og þá kemur þetta:o)

Svo er æfing á mánudag og vorfagnaður/árshátíð hjá vinnunni á morgun, geðveikt stuð:o)

Jæja, þarf að fara að drífa mig, vona að tölvan verði komin bráðum í lag.

Kær kv. Moi sjálf
Athugasemd(ir):
18 km er glæsilegt, þessi leið er líka ekki sú auðveldasta með allar sínar brekkur. Þú verður komin í hálft maraþon áður en þú veist af :) Kv. Agga
 
Skrifa ummæli
1 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?