Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

föstudagur, júní 01, 2007

EINS ÁRS AFMÆLI:O) 

Verð að byrja á því að játa mínar syndir hérna sem ég sit í vinnunni og ákvað að nýta tækifærið að skrifa meðan væri rólegt. Fór nefnilega ekki á æfingu í gær og er sko ekki stolt af:o( Var nefnilega ansi mikið slöpp eftir að ég kláraði síðustu næturvakt. Fékk eitthvað svo þvílíkt í magann að það hálfa væri nóg, úffpúff. Lá eins og rotuð hæna mest allan daginn þangað til ég var komin aftur núna í vinnuna og er orðin miklu skárri. Veit barasta ekki hvort ég sé að fá einhverja pest, hef nefnilega sloppið ansi vel við flestar pestir hingað til, sjö~níu~þrettán. Reyndar þau skipti sem ég verð lasin, þá verð ég lasin með stóru L-i en sem betur fer er það nú ekki oft:o) Allavega, þá fór ég ekki á æfingu þannig að km verða í minni kantinum þessa vikuna og stenst jafnvel við það munstur sem er búið að vera þróast dálítið undanfarið; langt eina vikuna og styttri hina. Er búin að hlaupa 17 km í þessari viku og svo er hlaup sem Laugaskokk hópurinn minn heldur núna á laugardaginn og þá ætla ég að taka 10 km þannig að ég kemst upp í 27 km sem er svona lala. Verð duglegari í næstu viku:o)


Jæjajæja, þá er stóra stundin runnin upp! Mín á EINS ÁRS HLAUPAAFMÆLI Í DAG!!! Ji minn einasti, trúi því varla. Er búin að vera hugsa mjög mikið undanfarið hvernig ég var fyrir ári síðan og það er varla hægt að lýsa því.
Ég var löngu búin að ákveða að fara í 10 km í RVK-maraþoninu og skráði mig í febrúar (2006) og keypti mér hlaupabuxur og allt, ekkert smá töff skiluru. Geymdi þær vel inni í skáp og prófaði að fara út að "hlaupa"(aðallega labba) tvisvar sinnum í apríl og síðan henti ég þeim aftur inn í skáp, fannst ég vera eittvað svo hallærisleg þegar ég sá alla hina flottu hlauparana út um allt virkilega hlaupandi þannig að ég var bara; allt í lagi, sleppum þessu bara. Svo einhvern tímann í byrjun maí var ég eitthvað að kíkja á heimasíðuna hjá World Class sem ég geri reglulega og þá sá ég auglýst svona undirbúningshóp fyrir RVK-maraþonið og ég leit á þetta sem ákveðið tákn fyrir mig að ég ætti að fara í maraþonið þannig að ég hikaði varla við að skrá mig, spurði reyndar afgreiðsludömuna í móttökunni sem tók á móti skráningum hvort þetta væri bara fyrir fólk í góðu formi og sem væri líka vant, ég leit nefnilega ekki út fyrir að vera einhver þvílíkur hlaupari og var heldur ekki í neinu einasta formi. Hún flissaði og sagði að ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur, þetta væri fyrir alla, þannig að ég skráði mig.
Fyrsta æfingin, hélt að ég myndi deyja fyrst bara úr skömm (og slatta feimni) þegar ég sá í hverslags formi flest fólkið var sem mætti á æfinguna; bakkaði mig hægt og rólega úr miðjum hópnum svo engin myndi horfa á mig og svo dó ég liggur við úr mæði þegar við lögðum af stað, var ekki með smá ögn af þoli. Var algjörlega búin á því þegar við vorum komin að nýju fótboltastúkunni sem er kannski í mesta lagi 50 m frá Laugum; eldrauð í framan og með þvílíkan astmahósta, þvílíkt móð og másandi. Þjálfarinn spurði hvort það væri eitthvað að þegar hann sá mig, leist greinilega ekki á blikuna en ég svaraði svo másandi (næstum eins og hundur, sver það) að þetta væri bara áreynsluastmi og bað hann mig vinsamlegast labba mig niður, var sko ekki á mót því.. hehe.. Ekki bætti úr að það voru teknir 600 m sprettir inni í Laugardalnum sem ég labbaði mest allan tímann. Eftir æfinguna var ég sko staðráðin í því að hætta við þetta allt saman. Klæddi mig reyndar upp fyrir næstu æfingu en var alveg þvílíkt lengi að ákveða mig hvort ég ætti að fara, tuðaði upphátt við sjálfa mig en svo fór að lokum að ég fór á æfinguna sem ég er mjög svo fegin í dag:o)
Hugsa sér að núna er ég að æfa á fullu fyrir 1/2 maraþon, hefði aldrei látið mér detta það í hug að það myndi gerast.

Beisíklí á þessu ári:

Svo er hlaupið náttúrulega á laugardaginn þar sem ég ætla að skella mér í 10 km.

Jæja, best að hætta þessu "væmna" blaðri;o)

Kær kv. Moi sjálf "afmælisbarn"

Athugasemd(ir):
Til hamingju með áfangann! Þú stendur þig eins og hetja. Við sjáumst á morgun í hlaupinu, ég ætla líka að fara 10.
 
Til hamingju með þennan árangur, Bjargey.
 
Til hamingju með ársafmælið! Þú stendur þig rosalega vel. Kveðja, Agga
 
Skrifa ummæli
3 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?