Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, ágúst 23, 2007

Hvað getur maður svifið lengi um á bleiku skýi? :o) 

Er á næturvakt og ákvað að nýta tækifærið og pára nokkrar línur í gamni;o)

Er sko ekkert komin enn af þessu bleika skýi sem ég er búin að vera flögrandi um á síðustu daga:o) Ég barasta trúi þessu varla ennþá að ég hafi klárað 1/2 maraþon! Þetta er svo miklu meira en ég þorði að vona í mínum villtustu draumum. Það var slatti af fólki sem spurði mig hvort þetta yrði ekki of erfitt fyrir svona manneskju eins og mig (svona manneskju í "besta" formi eða þannig) Ég var NEI, ég ætla að gera þetta no matter what og mín gerði sér sko lítið fyrir og kláraði þetta verkefni og sýndi þessu liði í tvo heimana!! Mjög hádramatískt... hehe.. ;o)

Það tók mig bara 1 og 1/2 dag að jafna mig þótt ótrúlegt sé. Var alveg rosalega þreytt á laugardagskvöldinu í fótunum og á sunnudagsmorgninum kjagaði ég eins og hæna fram úr rúminu og var með harðsperrur dauðans allan daginn en á mánudeginum var ég orðin rosa fín, alveg eins og glæný manneskja og engar harðsperrur, verkir eða neitt:O) Ætla samt að vera góð með mig og koma ekki á æfingu fyrr en á mánudag. Er byrjuð á vaktatörn dauðans. Er að vinna nánast streit til 1. september fyrir utan svefndag á föstudag. Ætla reyna að taka samt einn hálftíma eða svo inn á milli til að koma mér smá í gang aftur:o)

Þegar maður er búinn að framkvæma stórt markmið eins og þetta að klára svona "langt" hlaup, fer maður ósjálfrátt að hugsa hvað eigi að gera næst eiginlega. Ég er allavega búin að ákveða að fara pottþétt 1/2 maraþon í næsta Reykjavíkurmaraþoni en maður veit aldrei hvað gerist, segi svona, *blikkblikk* ;o) Mín plön svona framtíðarlega séð er að sjálfsögðu að stefna að því að fara heilt maraþon sem væri algjör draumur í dós og eftir nokkur ár að fara Laugaveginn þegar mín væri vonandi komin í pínu betra form:o) Þetta eru kannski háleit markmið en þetta er eitthvað sem mig langar óskaplega til að stefna að in der futuren;o)

Jæja, besta hætta þessu bulli og gauli en ekki bauli í bili, ein sem er komin smá svefngalsa í vinnunni.

Kær kv. Moi sjálf


ROSA SÆTUR SIGUR HJÁ SUMUM:O)
Athugasemd(ir):
Sveinbjörg mín þetta fólk sem efaðist um að þú gætir þetta þekkir þig greinilega ekki vel, ég efaðist aldrei um að þú kæmir í mark. Þú getur allt :o)
kv.Hildur
 
Flott hjá þér:D:D
 
Skrifa ummæli
2 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?