Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

mánudagur, febrúar 04, 2008

Hálftíminn... 

Guð hvað ég er fegin að þessi dagur sé að verða búinn, úff segi ég nú bara. Held að máltækið mánudagar til mæðu sé alveg hárrétt. Sko, þegar maður heldur að þessi ógeðslega pest sé búin og þá blossar þetta aftur upp. Þetta var bara rosalega erfiður dagur og brjálað að gera allan tímann. Svo kom í ljós að ég þurfti að vera á punktinum sem var frekar erfitt fyrir mig í dag (plús að ég var á fimmtudaginn, ekkert svo langt síðan..hmm..), því ég þurfti að fara í einum spreng heim og drífa mig að fara í hlaupagallann og svo var ég að fara á fund strax á eftir æfingu líka en þetta rétt hafðist allt, hjúff.

Fékk að semja við herra foringja að fara aðeins minna í dag þó ég megi alls ekkert við því. Það var nefnilega fundur út af verkefninu sem ég ætla að taka þátt í og guð hvað ég vona að það gangi allt vel upp, sjö-níu-þrettán undir spýtu. Megið hugsa vel til mín:) Skellti mér hálftímann og nokkra hringi inn í dal og aftur í Laugar. Þetta gerði að 6.6 km á 1.02.02 klst. Miklu minna en síðast. Gekk alveg ágætlega í heildina þrátt fyrir talsvert mikinn kulda, þurfti að labba mig niður nokkrum sinnum en þegar ég var komin á ról inn á milli náði ég alveg ágætis hraða og hélt honum í smátíma, vona að þetta fari að koma. Verð að passa mig að halda dampi og halda áfram eins og kreiý:o) Er reyndar voða hrædd um að ég sé að fá núna eitthvað kvefvesen, vona að það eigi ekki eftir að trufla mig, krossa putta plís:)

Jæja, best að fara að henda sér upp í rúm, er alveg búin í öllum líkamanum eftir daginn... ZZzzz...

MILLJÓN KNÚS, Moi sjálf
Athugasemd(ir):
Takk fyrir afmæliskveðjuna! Vonandi batnar þér sem fyrst! knús, Helen
 
Skrifa ummæli
1 Athugasemd(ir)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?