Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

fimmtudagur, apríl 23, 2009

GLEÐILEGT SUMAR!! :-) 

Gleðilegt sumar kæru vinir:)

Það er nú mest lítið að frétta en bara allt ágætt fyrir utan bakið og ökklafjandann. Afsakið orðbragðið, smá pirringur í gangi hjá sumum. Er búin að vera hrikalega slæm af verkjum og orðið það slæmt að þegar ég geng leiðir verkurinn í mjóbakið sem ég verð slæm í þegar ég sit lengi og eða þegar ég er að snúa sjúklingum. Þetta er orðið að veseni þegar þetta kemur þegar ég labba um. Það er líka eflaust af því að ég stíg svo vitlaust í til þess að passa auma fótinn. En ég er komin með tíma hjá bæklunardoksa í Orkuhúsinu út af þessari liðspeglun þann 5. maí. Tel dagana niður þar til ég hitti hann því ég er orðin svo innilega þreytt á þessu. Held að þetta sé bara skoðun af því ég hef ekki hitt hann áður. Sjáum hvað gerist. En ég var svo slæm í gær í vinnunni að það munaði minnstu að ég færi að hágráta, tók mjööög djúpan anda í hverju skrefi til að skæla ekki. Jæja, maður víst að vona það besta bara.

Fór á vorfagnað Lyflækningasviðs 1 í gær. Var smá leynigestur hjá henni Ellu minni og það tókst ágætlega því stelpurnar voru búnar að velta fyrir sér hver þessi +1 væri… héldu að hún væri búin að fá sér kall... hehe… snilld!! :-) En það var rosa gaman. Bjarni töframaður var veislustjóri sem fór á kostum. Svo var eitthvað djasstríó sem var flott. Þóra Arnórs. úr Útsvarinu kom og stjórnaði Útsvarsbaráttu á milli Hringbrautar og Fossvogs. Það var eiginlega frekar erfitt fyrir mig að fylgjast með einhverjum því ég var svo hrikalega hlutdræg en ég ákvað það fyrst að það var partý á lyfjasviði og ég vinn á skurðsviði og ég sat á borði hjá Hringbraut, þannig að ég fylgdist með Hringbraut sem vann síðan… hehe… :-) Svo var hið klassíska video hjá þessum snjöllu hjartastelpum eins og venjulega. Fékk næstum astmakast af hlátri án grins, náði varla andanum, snilld… hehe.. En þetta var rosa gaman og takk fyrir skemmtunina sætu skvísur og gaman að hitta á ykkur allar:-)

Svo er ég núna í 7 vakta törn á 7 dögum og búin með 3 og svo 4 núna um helgina. Úff, wish me luck!! Reyni að vera dugleg að mæta í sjúkraþjálfunina að gera prógrammið mitt. Tekur alveg einn og hálfan tíma og tekur VEEEL á! Ég er komin á annað þrep í ökklaprógramminu og það er ein æfingin þar sem er kreisý og ef hún tekur ekki á, þá veit ég ekki hvað!! Þarf að standa á öðrum fæti á dýnu og halla mér fram með hendurnar út og hinn fótinn út, svona eins og ég væri eins og flugvél, shitt hvað þetta er erfitt og það rennur af mér svitinn, þarf að halda þessari stellingu í 30 sekúndur og maður titrar og skelfur eins og hrísla. Markmiðið er náttúrulega að halda stöðugleika og svo fer maður á næsta þrep þegar maður nær því.

Jæja best að fara að gera eitthvað af viti.

Knús í krús, Moi sjálf

Smá myndir frá fjörinu í gær:-) Fleiri á facebook-inu;)

Ég og Ragga sæta í góðum fíling:-)

Íris læknaritari og söngkona að stjórna fjöldasöng.
Þóra að stjórna LSH-Útsvari, mjög skemmtilegt.
Ég og Ella sætasta:)

þriðjudagur, apríl 07, 2009

Niðurstöður... 

Jæja, þá eru niðurstöður komnar í hús úr þessari sneiðmyndatöku sem ég fór í um daginn. Það kom barasta ekkert nema fínt úr henni. Ég var bæði ánægð og óánægð með það. Auðvitað ánægð að sýndi ekkert en þá vantaði eitthvað til að sýna af hverju ég haltraði svona og með endalausa verki. Doksi var líka hissa út af því að hann brak og eitthvað við skoðunina og heldur ekki af hverju að ég væri haltrandi og með verki. Þannig að það varð úr því að hann vill að ég fari í eitthvað sem heitir liðspeglun og þá er farið með einhverja græju eða eitthvað inn í sjálfan liðinn eða eitthvað svoleiðis. Þetta er víst bara gert í Orkuhúsinu og ætlaði doksinn að senda öðrum doksa myndirnar og nótu um mig og svoleiðis. Er svo heppin að það er ein hjúkka í vinnunni sem hefur góð sambönd í Orkuhúsinu og er búin að vera stússast í þessu fyrir mig. Það er víst allt fullt í apríl en sjáum hvað setur.

Að öðru, er bara á fullu í sjúkraþjálfun og geri mitt æfingaprógramm sem tekur um það bil einn og hálfan tíma með brennslu og svoleiðis. Allskonar teygjuæfingar og háls- og herðaæfingar og styrktaræfingar og brennsla auðvitað líka, tekur mjög vel á, ekki veitir af:-) Það gerðist mikill áfangi í gær. Í fyrsta sinn í 6 mánuði fékk ég að hlaupa!!! Í heila eina og hálfa mínútu takk fyrir undir stjórn sjúkraþjálfarans. Það gekk bara ágætlega en ég finn alveg fyrir óþægindum, sérstaklega einhvern tímann eftir á. Hún var reyndar skíthrædd um að láta mig á brettið af því að hún var nýbúin að taka vel á ökklanum í tímanum en lét eftir vælukjóanum... hehe... ;-) Svo mátti ég gera aftur í dag en bara ef ökklinn væri ok. Ég fór aftur í eina og hálfa mínútu í dag en finn talsvert mikið til en maður verður bara að þrjóskast aðeins til að komast af stað... það finnst mér allavega;-)

Það var astmaæfing í dag og var þá þolpróf og ekki fór ég í það:/ Ég kíkti og lét sjá mig en það voru nú samt blendnar tilfinningar, get ekki neitað því, fannst ég vera eitthvað út úr kú þarna:-( En það var fínt að hitta á þá sem maður þekkti. Ég fylgdist með henni Jórunni minni hörkunagla og rústaði hún þolprófinu sínu, veit það pottþétt og á eftir að standa sig svo ótrúlega vel á Hnúknum í vor:-)

Best að fara að gera eitthvað af viti. Morgun/næturvakt á morgun og næturvakt á fimmtudag og svo næst á mánudagsnótt. Búin að vera næturvaktahrina hjá mér undanfarið og þó er ég í 50 % næturvöktum. Það eru víst að koma páskar, er ekkert að gera mér grein fyrir þessum hátíðardögum, algjört vesen allir þessi frídagar sko. Reyndar ekkert frídagar venjulega fyrir vaktavinnufólk þar sem maður lendir oft í að vinna á hátíðsdögum og hana nú!! Bara að tuða smá :o)

Knús í krús og gleðilega páska folks:-) Moi sjálf


Voðaleg djúp pósa... hmm...

"Svolítið" steikt:D

This page is powered by Blogger. Isn't yours?