Create your own banner at mybannermaker.com!
MySpace Backgrounds <$BlogRSDUrl$>

ÉG HEITI/MY NAME IS/ICH HEIßE/ME ILLAMO MARÍA, SVEINBJÖRG MARÍA $;O)

laugardagur, apríl 26, 2008

Allt kreisý að gera... úff.. 

Jæja þá í þetta sinn... *....la*la*la*la... *flauti*flauti*flaut...* Vá, þvílíkir sönghæfileikar finnst ykkur ekki?;o) NOT! ;þ Voðalega er maður eitthvað latur að blogga að það hálfa væri nóg. Það er bara svo hryllilega mikið að gerast að ég hef varla tíma í neitt. Vona innilega að það fari að róast eftir próf og svona og verði minna stress á manni.

Kannski fer ég bara yfir æfingarnar í fljótheitum í þetta sinnið. Er búin að vera algjör sökkari í þessari viku og ekki mætt á eina Laugaskokksæfingu!!! Úbbúbúbb. Það er búið að standa illa á með ýmislegt eins og vinna. En ég sendi herra foringja mitt reglulega laaaanga SMS að venju þegar ég kemst ekki á æfingu, mjög mikið til að friða samviskuna mína svo hann haldi ekki að ég sé að skrópa viljandi;o)

Svo ákvað ég að taka langa æfingu í morgun svona til að sýna smá lit og bæta upp pínu fyrir næstu viku af því að ég kemst ekki á æfingu á mánudag. Er að fara á næturvakt á sunnudagsnóttina, reyndar aukavakt og kvöldvakt á mánudagskvöld þannig að þetta verður strangur sólarhringur. Hlakka til þegar hann verður búinn. Allavega, fór bara mjög rólega til að kálfarnir væru örugglega í lagi og það gekk bara fínt. Dúllaði mér 15 km hingað og þangað, aðallega þangað og svo aftur hingað:D Hehe.. ...ótrúlega sniðug, er það ekki?;o) Tók þetta á sirka 2.25 klst. Mjööög lélegt haaa....!! En kláraði þó allavega, er það ekki mesta málið? Fyrir mér allavega, þó svo ég sé alltaf laaaangsíðust! En eru þeir síðustu ekki alltaf fyrstir? Hehehe... ...alltaf langað að segja þetta;o)

Fór á vorgleði hjá hjartó á miðvikudaginn. Fór með Ellunni minni og hitti allt liðið. Þetta var ótrúlega gaman og að hitta hitt fólkið "mitt":) Voðalega eigna ég mér alla haaa... Takk fyrir kvöldið góða fólk:o) Það var alveg geðveikur matur að það hálfa væri nóg, hlaðborð með milljón tegundum af mat að það var mjög erfitt að ákveða hvað maður ætti að fá sér þannig að það var bara sitt lítið af öllu, jammí;-) Einn hjartalæknirinn sem var í skemmtinefnd, kynnti kokkinn og sagði að hann héti Gísli og hrósaði honum mikið (að sjálfsögðu;) en það kom víst í ljós að hann héti Lárus og allur salurinn sprakk. Guð, hvað ég þoli ekki að standa fyrir framan fullt af fólki. Líður hundilla, úff. Reyndar enda flestar kynningar sem ég hef haldið með því að ég verð svo stressuð að það endar í hláturskasti og fæ alla á mitt band sem skellihlæja að.... hmmm... engu held ég, bara mér aðallega;þ Eða bara svona hrikalega meðvirkir í stressinu.. hehe.. ;o)

Svo er að styttast ískyggilega mikið í efnafræðiprófið, verður þriðjudaginn í næstu viku eða 6. maí. Úff, ég er orðin ógeðslega, ógeðslega mikið stressuð að það hálfa væri milljón sinnum meira en nóg. Er svo hrikalega prófkvíðin að ég gæti bara grátið, ég verð svo slæm. Hún Helga Eyja mín er búin að vera að hjálpa mér undanfarið og erum búnar að vera á fullu í þessu. Er farin að skilja aðeins pínu betur eins og með þessar efnajöfnur. En ji hvað þetta er leiðinlegt (þangað til ég fer að skilja þetta allt saman) Svo ætla ég að hitta hana allavega 2 sinnum áður en ég fer í prófið. Er svo hryllilega hrædd um að falla en ég vona svo innilega að ég nái. Er bara skíthrædd við próf almennt. Oh hvað ég hvað ég hata próf en samt fundist rosa gaman í skóla haaaa... Það verður vísta að anda inn og anda út... ...úffpúff.. En það versta er að prófið byrjar ekki fyrr en klukkan fjögur um daginn og það er MJÖG slæmt fyrir próffóbíumanneskju:o/ Æi, vona bara það besta:(

Jæja, best að hætta þessu blaðri og fara að gera eitthvað af viti eins og til dæmis að læra! Eins og ég segi, fer ég ekki á Laugaskokksæfingu fyrr en á miðvikudaginn. Reyni að fara í ræktina á þriðjudag ef ég verð ekki föst að læra áður en ég fer að vinna seinnipartinn. Ég bara VERÐ að ná þessu prófi annars verð ég alveg ógeðslega fúl út í sjálfa mig að ég veit ekki hvað ég mun gera, argiarg! Km í vikunni gætu þá orðið talsvert færri í næstu viku út af næturvaktinni á sunnudaginn og kvöldvaktinni á mánudaginn og svo er næsta helgi næturvaktahelgi. Náði allavega um 43 km í þessari viku sem er allt í lagi svoleiðis, auðvitað betra að fitubollan fari lengra sko;o) En semsagt þessi næsta vika verður frekar strembin og mun einkennast af stressi og látum. Þá skulum við bara hugsa vel til þarnæstu viku sem ætti að verða skárri vonandi;o) Jesús minn, blaðrið og vælið í mér maður! Sooorry pípól:o)

C you when I see (C) you (Rachael Ray;o)

Knúsedíknús, Moi sjálf

fimmtudagur, apríl 24, 2008


GLEÐILEGT SUMAR YNDISLEGA FÓLK:o)

fimmtudagur, apríl 17, 2008

Jææææjaaa... 

...í fréttum er þetta helst..... ....þó seinar séu og haldið ykkur fast.... ;)

Skellti mér í Flóahlaupið á laugardaginn og dúllaði mér í 10 km. Get ekki sagt að ég hafi farið frægðarferð í þetta skiptið, aðallega bara æfinga og aftur æfingahlaup, það verður bara þannig hugsunarháttur fram að RVK-maraþoni. Tíminn var bara lala. 90:20 mín. Byrjaði frekar illa hjá mér. Leggirnir voru beinlínis að drepa mig, beinhimnubólgan ákvað að skella sér á lappirnar um leið og ég fór af stað, samt var ég búin að setja smá hitakrem áður. Þegar ég var nýlögð af stað þurfti drykkjarbeltið endilega að losna þannig að ég var mjög skrautleg fyrstu sirka 2 km, hélt beltinu með báðum höndum og leit út eins og ég væri að dansa fugladansinn, vantaði bara smá rassadillerí. Náði að laga beltið þegar engin(n) sá til, svolítið hallærislegt að labba eftir 200 metra til að laga beltið.. hehe.. Svo til að toppa allt, dó Mp3 spilarinn minn eftir 7 km þannig að það var bara grafarþögn síðustu 3 km, yndislegt! En maður kláraði þetta og tók bara ansi vænan lokasprett eins og ég er orðin vön held ég... ..miðað við RVK-maraþon 2007... þeir sem muna eftir því Kodak momenti... ;o) Er ekkert rosalega sátt eða ósátt við hlaupið. Þetta fer bara í reynslubankann og nýtist mér vonandi. Svo voru kökur og rjómatertur og annað hryllilega gott gotterý í boði kvenfélagsins.

Svo skellti ég mér í sveitina til að nýta mér helgarfríið. Hékk eiginlega í leti allan tímann, prófaði pínuponsu nýju NB skóna og það litla sem ég testaði þá virkuðu þeir fínir en þarf að prófa þá meira því á laugardagsnóttina byrjaði að snjóa og allt í kaf og slabbógeð takk fyrir!! Einmitt það sem ég óskaði mér og þið ættuð bara að vita hvað sumir urðu glaðir.... eða EKKI!! Var sko aldeilis ekki sátt við þetta. Druslaði mér reyndar aðeins út í snjóinn á mánudagsmorgunn áður en ég fór heim og beint í vinnuna. Tók sirka 9.0 km hér og þar í kringum þorpið á einhverjum hundlélegum tíma, u.þ.b. 1.50.00 klst. Svo fór ég í bæinn og Fúsi bró sagði mér að vera viðbúna að fara moka í innkeyrslunni til að koma bílnum fyrir en þegar ég kom í bæinn, þá var það bara ENGINN snjór, bara alls enginn, JIBBÍÍÍÍ.... Var alveg geðveikt glöð yfir þessu öllu saman:)

En hey já, fór til hjemmelæknisins í gær í smá tékk og athuga hvað kom úr blóðprufum og hvað hann vildi gera með litla hjartavesenið. Blóðprufurnar komu bara vel út og sykurinn var súperflottur eða 4.7 sem er bara great. Eina sem hann sá var að B12 var orðið allt of lágt frá síðustu prufu. Hann sagði að það væri nánast á mörkunum að ég þyrfti sprautu við því en hann vildi prófa fyrst að ég færi á B12 töflur og svo fer ég aftur í blóðprufur eftir hálft ár og sjá hvað verður búið að gerast. Hlustaði mig líka og fannst þetta ekki vera mjög mikið aukahljóð en vildi samt senda mig til hjartalæknis í hjartaómun og tékk bara til öryggis og svona af því að lungnalæknirinn í verkefninu sem ég er að taka þátt í, vildi senda mig líka í ómun. Það er kannski líka af því að pabbi fór úr hjartaáfalli, þannig að það er bara better be safe than sorry þó þetta sé örugglega ekki neitt. Mér til mikillar gremju er ég heilum tveim cm lægri en ég hélt síðan ég var sirka 15 eða 16 ára, ARG! Ég var svo stolt að vera 165 cm en er víst bara 163 cm, úbbúbúbb, lítil feitabolla, ekki er það flott haaa.. Vigtin er bara sú sama upp á gramm liggur við, þyngist ekki (hjúff, sem betur fer) eða léttist (arg!) Er bara orðin óþolinmóð og leið á þessu því ég er svo innilega að reyna og reyna og aftur reyna að gera hvað sem ég get til að minnka þetta fituógeð, en það þýðir ekkert annað að reyna áfram. Doksinn minn peppaði mig bara áfram og sagði að það væru nú ábyggilega ekki margir sem væru í minni stöðu (þyngdin og svona) sem gætu skokkað og hlaupið og ætti bara að vera stolt af sjálfri mér, þá lyftist nú brúnin aðeins. En hann er búin að þekkja mig síðan ég var 2ja ára og veit greinilega hvað þarf að segja mér til að mér líði betur:)

Guð, eftir að ég kom heim frá lækninum var hringt dyrabjöllunni og ég ætlaði varla að nenna að svara en svo var hringt og hringt og legið á bjöllunni. Hélt að einhverjir í húsinu hefðu læst sig úti. Opnaði dyrnar og þá stóðu þar tveir útigangsmenn, ógeðslega illa hirtir og greinilega nýbúnir að drekka í sig kjark, MIKINN kjark og lyktin, ojbara. Mér var ekkert sama sko.
Þeir: "Ert'að leigja herbergi?"
Ég: "Nei, ekkert svoleiðis"
Þeir: "Jú, það er víst hægt!"
Ég í panikk: "NEI, það býr fólk hérna!"
Þeir: "Hver býr þá í kjallaranum..?"
Ég: "Það býr fólk þarna"
Þeir: "Er þetta ekki Þrepið?"
Ég ógeðslega fríkí hrædd: "Nei, það býr bara fólk hérna.."
Þeir frekar pirraðir: "Þetta er VÍST Þrepið, það var það fyrir mörgum árum!"
Ég í enn meira panikki: "Já, en þetta er ekki Þrepið lengur, bara venjulegt hús með fólki í..." Svona hélt þetta áfram í nokkrar mínútur og ég var bara alltaf ó mæ god, vissi varla hvað átti að segja nema: "Það býr fólk hérna...." Svo loksins hættu þeir og ætluðu að fara.
Þá segir hinn: "Má ég fá að pissa hjá þér"
Ég: "Nei, það geturðu sko ekki!"
Benti þeim á sjoppu neðar í götunni, en vissi reyndar að hún væri hætt, bara til að koma þeim í burtu.
Hinn: "Get ég pissað þar?"
Ég: "Já, já, auðvitað!!"
Svo fóru þeir. Dí hvað ég var hrædd maður. Voru vel fullir og neituðu að hreyfa sig. Annar lá fyrst á tröppunum eins og hann væri dauður bara. Þetta var eitthvað meðferðarheimili fyrir hundrað árum síðan eða eitthvað, löngu áður en leigukonan mín keypti húsið. Mundi eftir þegar hún var að segja mér frá sögu hússins. Auðvitað fór ég ekki að segja þeim það.

Svo var það æfing í gær, loksins mætti maður á Laugaskokksæfingu. Fólk spurði mig á fullu hvar ég hefði verið... hmm.. ætli einhver hafi saknað MÍN af öllum... hmm... skrýtið:-) Allavega, það var blessaður Fossvogurinn tekinn eða 10 km. Ekkert spes tími, 1.32.00 klst. eða eitthvað svoleiðis. Fór öfugan hring eins og venjulega og var hann sá síðasti í bili því að herra foringi skammaði mig svolítið á æfingunni í dag að nú yrði ég að fara að spýta enn meira í lófana og gjöra svo vel að fara upp asskotans Borgarspítalabrekkuna (smá umorðað hjá mér;o) Spretti allavega eins og brjálæðingur niður brekkuna hjá vinnunni minni (gaman að segja þetta og plús að ég fattaði líka að þetta gæti orðið fínn pissustoppstaður ef ég er alveg í spreng og hlaupið inn á deildina mína, hver segir að það sé ekki sniðugt að skipta um vinnustað:þ) Var bara nokkuð sátt svona við æfinguna í heild í góðu veðri fyrir utan asskotans rok, liggur við að maður hafi verið stundum í slow motion hreyfingu og varla komist áfram, frekar fyndið sko. Eftir æfinguna fór ég aðeins í sund og tók einhverja 500 metra skrið á rúmum 10 mínútum, ekkert sérstakt og með smá svindli eða a.k.a. blöðkur:þ

Svo var það æfing í dag að sjálfsögðu og við vorum reyndar ekkert ógeðslega mörg en það er nú ástæða fyrir því, þar sem það eru margir að fara að keppa í Boston maraþoni. Oh hvað mig langar geðveikt að fara eitthvað til útlanda að hlaupa í svona keppni. Sé það nú bara í hyllingum eftir svona kannski 30 ár ef að fitubollan verður einhvern tímann heppin... hmm... spurning.. Allavega, þá fékk ég semsagt aðeins að heyra það frá herra foringja um að fara bæta í og bæta í o.s.frv. og þar af leiðandi má ég ekki hlaupa Fossvoginn öfugan.. arg... :o/ Sagði líka að maí yrði algjört hell hjá mér og það yrði tekið á, úff pressan. Er svo hundömurleg í brekkum að það hálfa væri nóg, úffpúff. Það var Elliðarárdalurinn í dag sem var tekinn og fór út að Árbæjarstíflen sem gerir að 11.5 km á geðveikt sökktíma eða sirka 1.48.00 klst. í sko geðveikisroki, þetta var varla sniðugt og ef ég var einhvern tímann í slow motion hreyfingu í Fossvogshringnum í gær, þá var það þrefalt verra núna. En veðrið var annars bara rosa flott fyrir utan þetta damn rok. En maður verður víst bara að taka Pollýönnu vinkonu á þetta, það þýðir ekkert annað.

Fúsi bró fór með hann Óla greyið mitt í skoðun í dag og hann fékk fulla skoðun án athugasemda og ´10 merki á bílinn, jibbíjei!!!! Hann var sko með ´08 merki, en af því að hann er 2005 módel þá fékk hann ´10 merki:):) Var svo geðveikt ánægð þegar ég sá nýja merkið á honum, hoppaði ég um innkeyrsluna á táslunum alveg kreisý af ánægju. Svolítið klikkuð haaa... þarna vilduð þið ekki þekkja mig... ...hehe... ;o) Ótrúlegt hvað það þarf ekki meira til að gleðja mann;o)

Svo er kvöldvakt á morgun þannig að ég missi af Boggupuði í enn eitt skiptið, þarf að fara að taka mig á þar, skamm, skamm Sveinbjörg! Ætti að komast næsta föstudag. Svo missi ég líklegast af tveimur Laugaskokksæfingum í næstu viku:o/ Er á morgun/næturvakt á mánudag, en fer út að hlaupa þegar ég slepp út af morgunvaktinni og tek þá líklegast Brúnaveginn "minn" og eitthvað skemmtó og svo á miðvikudag er vorgleði/árshátíðarfílingur hjá hjartó og mín ætlar að mæta sem kannski "leyni"gestur eða þannig:þ Verð eiginlega að láta sjá mig en ég verð í fríi þannig að ég slugsa ekki að hlaupa og fer væntanlega Fossvoginn fyrri partinn ef guð leyfir mér og fer hann réttan, það verður álag maður, úff! ;-) En ég kem á venjulega æfingu á fimmtudag, I promis:)

Jahérna hér, ég er þekkt fyrir rosalega lööööng SMS (spyrjið bara t.d. herra foringja;þ) og mjöööög löööng e-mail (spyrjið bara t.d. Fríðu Rún;þ) en þarna held ég að ég hafi toppað sjálfa mig í blogginu, Jesús Pétursson barasta;-) Þetta er dágóður vikuskammtur haaa... Ætla að reyna að vera duglegari að vera updata en það er bara búið að vera brjááálað að gera eitthvað að ég hef varla tíma í neitt, guð hvað ég hlakka til að komast í sumarfrí, úffpúff. Ef ykkur leiðist ætti þetta kannski að redda pínulítið þótt ekki mjög merkilegt sé:) Veit ekki hvenær næsta bloggerí verður. Kannski eftir viku... Dónt knów, we´ll see;o)

Knúserí*Knús*Knús, Moi sjálf



P.s. Læt fylgja tvær myndir í viðbót af marsþoninu:)


Sjáið bara lífsgleðina í stelpunni, það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi (þó maður sé feitur:þ)

Je maður minn, geðveik gella eftir tæpa 6.0 km haaa...

P.s.s. Gangi ykkur æðislega vel á mánudaginn elsku Laugaskokkarar sem eruð að fara í Bostonmarþon. Það verður hugsað mikið til ykkar og sent fullt af orkustraumum. KNÚS**

fimmtudagur, apríl 10, 2008

Afsakið HLÉ... 

Úbbúbúbb.... hvað gerðist? Letipúkinn settist að hjá sumum, ætli það sé ekki best að bæta pínuponsu úr því:) Það hefur verið svo nóg að gera að það hálfa væri nóg. Liggur við að ég að hafi getað flutt í vinnuna í heila viku án þess að fara neitt en það slapp fyrir horn;o) Sjáum hvort ég muni eftir að hafa gert eitthvað sniðugt... hmm let´s see...

Fríða Rún sendi mér þoltöluna fyrir þoltest nr. 2. Ég fékk töluna 26 úr fyrsta testinu eða hljóp 1440 metra á 12 mínútum sem er mjög slakt og þá þurfti ég að bæta mig um 150 metra til að komast á það næsta stig sem er slakt. Núna fékk ég þoltöluna 29 eða hljóp 1550 metra á 12 mínútum sem er slakt og þarf að bæta mig um heila 400 metra til að komast á næsta stig sem er nokkuð gott. Hún reyndi að reikna út svo það væri þannig raunhæft að ég næði að komast á næsta stig að ég næði að komast á næsta stig eftir ár eða að bæta mig um 100 metra sirka á 4 mánaða fresti, dúddamía, ætli ég muni ná þessu einhvern tímann? Var nefnilega hálfdauð eftir testið og var á 7.8 allan tímann, frekar mikið lélegt haaa... Nú þarf þessi fitubolla að bæta sig og hel***** fitudrullan að fara í burtu, plíííísss.... er alveg geðveikt ógó eitthvað. Vildi einhvern tímann að ég færi að líta út eins og þessir frábærustu Laugaskokkarar í heiminum. Svo var þessi fræðslufundur 2. apríl og hann var fínn og mjög fræðandi og það voru t.d. kynntar niðurstöður úr þoltestum og svona ýmislegt og umræður o.fl.

Helstu æfingar undanfarna viku hafa gengið bara fínt. Hef ekki komist á allar Laugaskokksæfingar út af næturvöktum og þá aðallega þegar morgun/næturvaktir eru. Hef farið að hlaupa eftir morgunvaktina en þá fer ég úr vinnunni klukkan 14 og svo farið að sofa.. ZZzz..

Þetta er svolítið nördalega sett upp en maður er svona pínu latur í þetta skiptið, er sko að fara að vinna á eftir.. ZZzz.. Æfingarnar hafa bara gengið fínt fyrir sig svosum fyrir utan *hóst* ömurlega hallærislega tíma *hóst* Æfingin á mánudaginn var reyndar alveg hryllileg og ógeðslega erfið að það hálfa væri nóg og það er bara undirritaðri algjörlega að kenna. Það voru semsagt Brúnavegshringir, tók bara 3, ætlaði að taka 4 sko. Fór nefnilega beint á æfingu eftir næturvakt og svaf næstum yfir mig þannig að ég hljóp út án þess að borða og var ekkert búin að borða síðan um nóttina. Fyrsti hringurinn gekk bara lala og eftir það fór mér bara að líða illa. Fékk hryllilega hungurverki og fór að svima þvílíkt og fékk geðveika ógleði að ég hélt að ég myndi barasta gubba. Held ég hafi barasta fallið í sykri við þetta allt saman, hef lent í svona sirka tvisvar, þrisvar áður. Liggur við að ég fari að fá mér þrúgusykur til að hafa á mér á æfingum, eitthvað þarf ég að gera, það þarf ekki mikið til hjá mér. Reyndi að hanga eins lengi á æfingunni og ég gat og klárað hana. Þetta gerði að einhverjum aumum 8.3 km, frétti að hinir hefðu farið sirka 9.5 km þannig að það var svo sem ekki ógeðslega langt á eftir. Æi, þarf að passa að klúðra þessu ekki svona illilega aftur. Hélt að ég myndi bara deyja á æfingunni, pass po fitubollan þín!:)

Svo er það annað "keppnis"hlaup á laugardaginn og þá er það "köku"hlaupið sem margir ættu að kannast við eða a.k.a. Flóahlaupið. Þetta verður þá í annað skiptið sem ég tek þátt í því og það verður spennandi að sjá hvernig það mun fara allt saman. Vona að ég sökki ekki ógeðslega feitt og verði á svipuðum tíma og í fyrra eða helst betri (að sjálfsögðu;o) Eftir hlaupið ætla ég að skella mér í sveitina og nota helgarfríið góða í leti;O) Ætli ég reyni nú ekki að skokka pínu. Þessi vika gæti orðið afskaplega góð eða farið yfir 40 km ef allt gengur eftir, ó mæ lord bara. Svo verður maður að reyna að halda þessu við, þó svo það gæti verið alltaf plús eða mínus við þessa tölu, kannski aðallega mínus í bili haaa...

Keypti mér loksins nýja hlaupaskó og blæddi litlum 16.000 kalli fyrir þeim. Áttu reyndar að kosta tæp 20.000 en svona þegar maður er í svona æðislegum skokkhóp eins og Laugaskokkinu "mínu", getur maður stundum grætt og fengið afslátt, t.d. í Afreksvörum;o) Er búin að prófa Asics, núna síðast Mizuno sem eru alveg að deyja frá mér, búin að nota þá svo mikið greyin. Fríða Rún ráðlagði mér að fá mér New Balance núna og það verður spennandi að sjá hvað kemur úr því. Daníel í Afreksvörum (rosa flott búðin, komin á nýjan stað og stærri:) mældi fæturna hátt og lágt og fann hvað ég þyrfti og auðvitað innanfótarstyrkta. Ætla að prófa þá aðeins um helgina og sjá hvernig gengur á þeim, hope for the best. Þeir virkuðu allavega fínir og ógeðslega flottir, tími varla að nota þá.. hehe...

Svo er það bara vinna í nótt og helgarfrí, jibbí. Er búin að vinna í heila viku samfellt með einum svefndegi. Svo fer ég beint af næturvaktinni út á heilsugæslu í blóðprufu í tékk. Það er bara það versta að vera fastandi frá miðnætti (þó svo ég hafi bara gott af því:) og það í vinnunni þar sem er frekar heitt á deildinni og á eftir að vera örugglega DÁLÍTIÐ þyrst, úff, þetta verður challenge. Það verður gott þegar þetta verður búið og ég vona að komi gott úr þessu öllu saman og svo fer ég til heimilislæknisins í næstu viku að fá úr prufunum og sjá hvað hann ætlar að gera í þessu hjartaveseni ef það er eitthvað vesen á því og þetta blessaða bjúgvesen.

Jæja, held að ég sé komin með allt update að þessu sinni. Pósta örugglega ekki fyrr en eftir helgi, þegar ég kem heim úr sveitinni, jafnvel á miðvikudag.

Hafið það ógó gott um helgina fólkið mitt, megið vera pínuponsu dugleg að kvitta, er svo frek að það hálfa væri nóg, hehe.... :þ

KNÚSEDÍKNÚS, Moi sjálf

This page is powered by Blogger. Isn't yours?